Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 31

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 31
29 vandamál úr því, sem er það ekki í raun og veru. Og árangur af ung- og smábarna- eftirliti getur alla vega aldrei orðið betri en sú þekking og sá skilningur, sem sá hef- ur til að bera, sem leysir starfið af hendi eða sú virðing, sem hann ber fyrir því. HEFÐBUNDIÐ VERKSVIÐ UNG- OG SMABARNAEFTIRLITS I. Vöxtur og þroski. II. Næring og næringarvandamál. III. Sóttvarnir og ónæmisaðgerðir. IV. „Case finding“: leita uppi afbrigði- lega þróun a) líkamlega (þar með talið sjón, heyrn og talörðugleikar) b) andlega eða geðræna c) greindarfarslega d) félagslega V. Koma vandamálum á framfæri við þá aðila, sem eru líklegastir til að geta leyst þau, ef ung- og smábarnaeftirlit getur það ekki sjálft. VI. Fylgja vandamálum eftir. VII. Smálækningar. VIII. Svara af þekkingu og skilningi ein- staklingsbundnum spurningum for- eldra og forráðamanna barna um allt, sem þeim viðkemur. XI. Einföld leiðbeiningarstarfsemi og geðvernd. X. Fræðslustarfsemi. XI. Slysavarnir. XII. Tannvernd. UNGBARNADAUÐI, SJÚKDÓMAR, MEÐ- FÆDDIR OG ÁUNNIR GALLAR Þar eð aðrir munu ræða um vöxt og þroska barna — næringu og matarræði, ný- burafræði og vanda þroskaheftra barna, mun ég láta þessi undirstöðuatriði liggja á milli hluta að mestu. En vert er að minnast þess, að bættir lifnaðarhættir, aukin velmegun, hreinlæti, hollusta og örar framfarir læknisfræðinnar hafa lækkað ungbarnadauðann ótrúlega: ör þróun sýklalyfja og ónæmisaðgerðir hafa dregið úr hættum smitnæmra sjúkdóma; bætt fæðingarhjálp og framfarir nýbura- fræðinnar hafa dregið markvisst úr burð- armálsdauða og forðað mörgu barni frá örkumlun; vaxandi þekking og skilningur á næringarþörfum ungra barna hefur og stuðlað að aukinni líkamshreysti og við- námsþrótti líkamans; og bættur efnahagur hefur leitt til þess, að hörgulssjúkdómar eru varla til nema fyrir þekkingarskort eða eitthvert form af hirðuleysi hérlendis. ÓNÆMISAÐGERÐIR Takmark ónæmisaðgerða er oftast að vernda einstaklinginn fyrir sjúkdómum og þjóðfélagið fyrir faraldramyndunum. Til að hið síðarnefnda megi takast þurfa ónæmisaðgerðir að ná til 70% þjóðfélags- ins eða betur — eða svo er a.m.k. í þéttbyli. Á þessu vill víða verða brestur, sérlega í hinum stærri löndum. Margt ungt fólk hef- ur aldrei séð t.d. kíghósta í óbreyttri mynd, svo að ekki sé minnst á barnaveiki, stíf- krampa, mænusótt eða berkla. Sama fólki hættir til að gleyma, að þessir sjúkdómar eru enn til og því þarf að minna almenning á nauðsyn ónæmisaðgerða og vekja athygli á, að ónæmi þurfi oft að byggja upp stig af stigi með reglubundnum ónæmisaðgerðum. Þar sem þátttaka almennings í ónæmis- aðgerðum hefur dofnað verulega, er þegar farið að bera aftur á faraldramyndunum, því að ekki hefur tekizt að útrýma bakterí- um og veirum, þótt tekizt hafi að gera ein- staklinginn ónæman fyrir sýkingu af sum- um þeirra. Onæmi, sem myndast fyrir ó- næmisaðgerðir, er og eiginlega alltaf skammvinnara og oftast ótryggara en ó- næmi, sem myndast fyrir eðlilegar sýking- ar. Því hefur viljað bera á því, að sjúk- dómar, sem venjulega herja á börn, hafi breytzt í fullorðinssjúkdóma, þar sem ó- næmisaðgerðum hefur verið fylgt bezt eftir. Og nú vex hver kynslóð af annarri úr grasi, sem hefur lítið sem ekkert af eðli- legum mótefnum gegn t.d. barnaveiki og mænusótt. Og þessi einstaklingar eru marg- ir hverjir komnir á barneignaraldur eða um það bil að komast það. Þá er eftir að sjá, hver áhrifin verða á nýfædd börn, sem fram til þessa hafa verið varin meira og minna fyrir sýkingu af þessum sjúkdómum fyrstu mánuði ævinnar fyrir mótefni, sem berst frá líkama móður til fósturs. Og áður en langt um líður verður sennilega líkt ástand, hvað viðvíkur mótefnum gegn mislingum. Athygli almennings beinist nú orðið víð- ast hvar langtum fremur að óþægindum og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.