Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Blaðsíða 75

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Blaðsíða 75
 73 möguleikar á því að fá raunhæfa aðstoð fyrir þroskahefta og foreldra þeirra. Ég spurði að því fyrr í erindi mínu hvað hinn almenni læknir gæti gert þegar for- eldrar þroskahefts barns spyrðu hann hvað hægt væri að gera fyrir barnið. Ég tel mig hafa svarað því að nokkru í því sem ég hef rakið hér áður. Nýjar leiðir hafa opnast til þess að greiða götur þroskaheftra á allra síðustu árum, og þó enn vanti mikið upp á, tel ég að læknar hafi þó í dag meiri mögu- leika á að vera virkari aðilar í meðferð þroskaheftra barna en hingað til. Til ítrekunar vil ég taka fram eftirfar- andi atriði: Það er nauðsynlegt að greina þroska- heftingu mjög snemma og ef aðeins er um grun að ræða, fylgja honum vel eftir. í flestum tilfellum er þörf á ítarlegri rann- sókn á barnadeild á sjúkrahúsi. Þegar þroskahefting hefur læknisfræðilega verið staðfest, hvort sem um er að ræða sér- staka læknisfræðilega meðferð eða ekki, er mikilvægt að gera þegar ráðstafanir til þess að koma foreldrunum í samband við þá aðila, sem eiga að sjá um uppeldisfræði- lega, sálfræðilega og félagslega greiningu og meðferð. Þegar um þroskaheft börn á forskólaalri er að ræða, er í öllum tilfell- um hægt að vísa þeim beint til sérfræði- deildar Öskjuhlíðarskóla í Kjarvalshúsi, hver sem fötlunin er. Þetta á einnig við um „legotekþjónustu“ í Kjarvalshúsi. Ef barnið er vangefið er hægt að vísa því til göngudeildar Kópavogshælis. Það er mikilvægt að læknirinn komi í veg fyrir það, að þroskaheft börn týnist i kerfinu í leit að réttum meðferðaraðila. Að lokum vil ég endurtaka það enn einu sinni, að það á að hefja þjálfun og kennslu þroskaheftra bama strax og fötlunin hef- ur verið staðfest því versti óvinur þroska- hefts barns er tíminn sem liður án þess að nokkuð sé gert. Þröstur Laxdal KRAMPAR EÐA FLOGAVEIKI? Krampar og flogaveiki í einhverri mynd hafa verið fylgifiskar mannkynsins frá örófi alda, en samt sem áður hefur enn ekki tekist að upplýsa hina raunverulegu frumorsök eða patho-physiologiu, sem ligg- ur að baki krampaköstum. Við vitum að- eins, að krampar stafa af óhóflegri sam- tímis hópafhleðslu neurona, hvar sem er innan heilabúsins og geta þannig lýst sér á margvíslegan hátt, allt frá höfuðverk, geð- brigðaköstum, draumsýnum, upp í alls herjar cloniska grandmal krampa. Vert er að minnast þess, að krampi er ekki sjúkdómur, heldur aðeins sjúkdóms- einkenni, framkomið í sambandi við ýmsa sjúkdóma, þar á meðal flogaveiki og ætti ekki að rugla þessum tveimur hugtökum saman. Tíðni krampa hjá börnum er ótrúlega há, svo há, að áætlað hefur verið að 3,5—5% allra barna megi búast við einhvers konar krampaköstum fyrir skólaaldur. Þar af enr þó aðeins í kringum 0,5% með raunveru- lega flogaveiki. Hér verður rætt um þá þrjá krampa- flokka, sem helst eru einkennandi fyrir yngstu börnin. Þetta eru innbyrðis ólíkir flokkar, með mjög misjafnar framtíðar- horfur. Einn krampaflokkurinn, svokallað- ir ungbarnaspasmar, er hér fulltrúi floga- veiki, með mjög slæmar horfur í för með sér. Hinir tveir krampaflokkarnir, annars vegar áreitikrampar, með prýðilegar horf- ur og hins vegar hitakrampar með nokkuð misjafnar horfur, teljast aftur á móti hvor- ugir til flogaveiki. UNGBARNASPASMAR (Minor motor krampar, salaam köst) Ungbarnaspasmar eru kliniskt syndrome, sem er fram komið af ýmsum truflunum á heilastarfsemi, með margvíslegum vefja- breytingum. Má þar t.d. nefna hydro- cephalus, micro-cephalus, porencephalus og Í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.