Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 78

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 78
76 3. Tímalengd krampans innan við 10 mín. 4. Engin neurologisk einkenni, nema mögu- lega fyrstu mín. eftir krampann. 5. EEG eðlilegt, tekið í fyrsta lagi viku eftir hitann og krampann, (hiti og krampar valda hægum bylgjum í u.þ.b. vikutíma). Einkenni illvígra hitakrampa 1. Standa í meira en 15 mín. 2. Meira en einn krampi í hitatoppi. 3. Focal neurologisk einkenni. Greining Við greiningu á hitakrampa verður að minnast þess, að hvers konar meiri háttar krampakasti fylgir mikil áreynsla, sem út af fyrir sig kann að orsaka einhvern hita. Getur því einstöku sinnum verið svolítið óljóst, hvort barnið hefur verið með hita fyrir krampann eða hvort það fékk hitann eftir á. Rétt er að gera mænustungu, ef extracranial hitaorsök er ekki ljós og helst hjá öllum börnum með sinn fyrsta hita- krampa innan 1 og Vi árs, ef aðstæður leyfa, til að útiloka byrjandi meningitis.8 Viral öndunarfærasýkingar og roseola virð- ast algengasti undanfari hitakrampa. Hita- krampar eru líklegri til að koma fram í svefni en vökuástandi. Meira en 50% hafa jákvæða fjölskyldu- sögu um hitakrampa. U.þ.b. 50% fá sína hitakrampa aðeins milli eins og 2ja ára. Helstu tveir áhættuþættirnir fyrir frekari hitakrömpum hafa reynst ungur aldur við upphafskrampann, svo og fjölskyldusaga um flogaveiki. Hættan á endurteknum hita- krömpum er fyrst og fremst fram að 3ja ára aldri, en minnkar þá óðum. Horfur Menn hafa ekki verið á eitt sáttir um horfur barna með hitakrampa, enda virð- ast þær háðar ýmsum atriðum. f nýlegri, athyglisverðri grein,6 skýrðu Karin Nelson og Jonas Ellenberg frá National Institute of Health frá prospectivri rannsókn, sem náði yfir 1706 börn með hitakrampa, fylgt eftir til 7 ára aldurs. 60% þessara barna fullnægðu skilyrðum fyrir einföldum hita- krömpum og 1% þeirra fengu flogaveiki fyrir 7 ára aldur, sem er helmingi hærri tíðni en hjá heilbrigðum börnum, sem aldrei hafa haft hitakrampa. Væri hins vegar um illvíga eða complex hitakrampa að ræða, jókst mjög áhættan á síðari flogaveiki. Einnig varð ljóst, að tvö önnur atriði skiptu megin máli í því sam- bandi við framtíðarhorfurnar. Komu því fram þrír greinilegir áhættuþættir, þ.e.a.s.: 1. Complex upphafshitakrampi. 2. Fjölskyldusaga um krampa án hita. 3. Óeðlileg neurologisk einkenni fyrir krampa. Ef um einn áhættuþátt var að ræða, fengu 2% barnanna síðar flogaveiki. Ef um tvo eða fleiri áhættuþætti var að ræða, fengu 10% barnanna flogaveiki. Þessi vitneskja hlýtur að skipta nokkru máli, þe?ar farið er að hugsa til fyrirbyggj- andi meðferðar. Meðferð Meðferð hitakrampakasts er óumdeilan- lega fólgin fyrst og fremst í skjótri líkams- kælingu og langflestir myndu einnig gefa krampalyf. Náist barnið í kastinu sjálfu, er best að gefa Valium, annað hvort i.v., eða jafnvel rectalt, beint úr ampullu. I.v. skammtarnir eru 0.3mg/kg/skammt gefið mjög hægt í æð, óútþynnt, en helst skolað á eftir með saltvatni. Rectal skammtarnir eru aðeins hærri, eða 0.5mg/kg, sem þýðir, að eins árs gömlu 10 kg barni má ffefa allt að 1 ml þá leiðina. Ekki hafa sést öndunar- erfiðleikar og verkunin helst lengur rectalt en i.v. Það hefur sýnt sig, að með rectal- lausn koma fram krampalægjandi plasma- gildi innan 4urra mínútna, í mótsetningu við það, að u.þ.b. % klst. tekur að ná sam- bærilegum árangri með Valium stílum.8 Vegna lélegrar absorptionar skyldi Valium aldrei gefið i.m., frekar en Phenytoin. Sjaldnast er þó komið að barninu fyrr en eftir krampakastið og hefur þá hingað til þótt best að gefa inj.Phenemal í vöðva, 5mg/kg, endurtekið eftir 2 klst. Hins veg- ar hafa sænskir og nýsjálenskir kollegar sýnt fram á, að hægt er að ná kramnafyrir- byggjandi serum-styrkleika innan 90 mín. með Phenemal töflum, en að vísu í bvsna stórum skömmtum, þ.e.a.s, 12—15mg/kg í

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.