Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Blaðsíða 105
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 22
101
V 64 ER DULINN GALLI I KOMPLÍMENTKERFINU
EINN AF ORSAKAFÁTTUM RAUDRA ÚLFA OG
HERSLISMEINS ?
Guðmundur J. Arason. Árni J. Geirsson*, Kristján
Steinsson*, Ragnheiður Fossdal#, I’óra Víkingsdóttir,
Helgi Valdimarsson, Rannsóknastofa Háskólans i
Ónæmisfræði og *Lyfjadeild og #Blóðbankanum.
Við höfum þróað nýja aðferð til að mæla
komplementháða hindrun á útfellingu mótefnaflétta
(PIP, prevention of immune precipitation) i sermi
nokkurra sjúklingahópa. Skoðaðir voru 31 sjúklingar
með rauða úlfa (SLE), 32 sjúklingar með iktsýki (RA),
17 sjúklingar með með herslismein (SSc, systemic
sclerosis) og 18 sjúklingar með dermatitis herpetiformis
(DH). brir sjúkdómanna, þ.e. SLE, SSc og DH hafa
marktæka fylgni við erfðamörkin C4AQ0. PIP var
marktækt lægra í rauðum úlfum (PcO.OOOI) og
herslismeini (P<0.0001) miðað við iktsýki, Dll og
heilbrigða blóðgjafa (N= 102). bessi galli greindist þótt
sjúkdómur væri i flestum tilvikum óvirkur og sýni
væru eðlileg í komplementháðu rofprófi (CH50) og i
C4 og C3. Við athuguðum einnig PlP-virkni i
heilbrigðum einstaklingum með skilgreindum C4
arfgerðum, og reyndist hún lækkuð i sumum en ekki
öllum einstaklingum með arfblendinn eða arfhreinan
skort á C4A. bessar niðurstöður benda til þess að próf
okkar greini áður dulinn galla i komplementháðri
hindrun á útfellingu mótefnaflétta (PIP), og að gallinn
geti verið einn af ráðandi þáttum i tilurð (aetiology)
sumra bandvefssjúkdóma. Gallinn greinist i sumunt en
ekki öllum einstaklingum nteð skort á C4A.
V 65 GEÐGREININGAR SÍKOMUSJÚKLINGA Á
VÍMUEFNADEILDIR
Kristinn Tómasson
Geödeild Landspítalans
Áfengissýki er langvinnur sjúkdómur sem
mikið hefur veriö reynt að meöhöndla en líkt og um
flesta aðra sem hafa langvinna sjúkdóma leitar
umtalsverður hópur áfengissjúkra meöferðar oftar
en einu sinni eöa tvisvar. Þessir einstaklingar
veröskulda sérstaka athygli þar sem fyrstu
lækningatilraunir viröast ekki hafa boriö árangur og
ætla mætti að frekari meöferöar sé þörf hjá þeim.
Meö því aö finna snemma út hvaö einkennir þessa
sjúklinga mætti hugsanlega aölaga meöferöina að
þeirra þörfum svo síkomum þeirra linni.
Markmiö þessarar rannsóknar var aö líta á
mismunandi geögreiningar síkomusjúklinga borið
saman viö þá sem eru að koma í sínar fyrstu
meöferöir. Síkomusjúklingar voru skilgreindir sem
þeir sem voru aö koma í sína fimmtu innlögn á
vímuefnadeild og til samanburðar voru allir aörir
sjúklingar sem lögöust inn á vímuefnadeild.
Sjúklingar á vímuefnadeildum Geödeildar .Land-
spítalans og sjúklingar á sjúkrastofnun SÁÁ aö
Vogi tóku þátt í þessari rannsókn. Alls luku 352
sjúklingar geögreiningarviötölum (s.k. DlS-viötöl)
meö hjálp tölvu og af þeim svöruðu 347
spurningarlista varöandi fyrri meöferö. Alls voru
141 síkomusjúklingur. Meöal þeirra var algengi
kvíöakasta og víöáttufælni, andfélagslegrar
hegðunar, og annarrar fíknar jafnframt áfengis-
sýkinni, mun algengari en hjá þeim sem voru aö
koma í sínar fyrstu meöferöir.
Þegar áfengissjúklngar leita meöferöar,
þurfa læknar aö taka sérlegt tillit til þessara
greininga og aölaga meöferö samkvæmt þvi.