Læknablaðið : fylgirit - 15.07.1995, Page 8

Læknablaðið : fylgirit - 15.07.1995, Page 8
8 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 lensku og réttritun og ég hef búið að þeirri kennslu alla tíð síðan. Fröken Guðlaug Arason kenndi okkur skrift og var á sinn hátt sérstæð eins og Jóa í Jötu! Hún hafði jafnan spanskreyr úti í horni, sem var tilbúinn ef einhver hegðaði sér ekki vel. Hún þéraði alltaf börn þekkts fólks og þar með þéraði hún Svanhildi systur mína og mig. Svanhildur lærði fallega skrift hjá henni, en ég hef aldrei skrifað vel, en þó greinilega. Aðrir kennar- ar voru Elías Bjarnason, sem kenndi okkur landa- fræði og reikning, séra Bjarni Hjaltested, kristin- fræði og dönsku. Guðmundur Jónsson kenndi teikningu, sem var mitt eftirlætisfag. Ég fékk 8 í teikningu á brottfararprófi, en það var hæsta einkunn sem þá var gefin og var ég heldur hreyk- inn af því. Ég hljóp yfir bekk í barnaskólanum og í stað þess að fara í 8. bekk veturinn 1924-25, varð að samkomulagi milli móður minnar og séra Magnúsar Helgasonar skólastjóra að ég fengi að sitja í tímum í Kennaraskólanum þann vetur. Séra Magnús var bróðir séra Kjartans sem hafði skírt mig og fermt sumarið 1925, en þeir voru þremenn- ingar við móður mína. Þar fylgdi vinátta skyld- leika. Af kennurum Kennaraskólans eru mér minnis- stæðastir skólastjórinn, séra Magnús, sem kenndi Islandssögu, Freysteinn Gunnarsson íslensku- kennari og Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti, sem var teiknikennari okkar. Hann var afar drátthag- ur. Ég naut mjög kennslu þessara ágætismanna. Af nemendum Kennaraskólans eru þeir sem ég best man eftir Guðlaugur Rósinkrans síðar Þjóð- leikhússtjóri og Helgi Elíasson síðar fræðslumála- stjóri, en þeim kynntist ég báðum vel. Vorið 1925 byrjaði ég á námskeiði til undirbún- ings inntökuprófs í Menntaskólann, en þetta námskeið héldu þeir Sigurður Jónsson skólastjóri barnaskólans og Einar Magnússon menntaskóla- kennari. Ég lauk því prófi og stóðst það í júní 1925 og réðst síðan til sumarvinnu hjá Andrési Eyjólfs- syni í Síðumúla í Hvítársíðu, sem síðar varð al- þingismaður. Hann var giftur Ingibjörgu systur Sigurðar skólameistara á Akureyri. Ég átti þar góða vist og um haustið settist ég í Menntaskól- ann. Menntaskólaárin Þegar ég byrjaði í Menntaskólanum voru þar mikil húsnæðisvandræði. Helmingurinn af fyrsta bekk var því í útibúi í Iðnskólahúsinu við Lækjar- götu. Þar var ekki eins mikill agi og í gamla menntaskólahúsinu og varð stundum að kalla á Geir Zoéga rektor til að lesa yfir nemendunum og áminna þá. Einar Magnússon kenndi okkur landafræði og dönsku, Finnur Einarsson síðar bóksali eðlisfræði og Jóhannes Sigfússon sögu og kristinfræði. Ensku kenndi maður að nafni Ólafur Kjartansson, þá nýkominn frá Ameríku. Hann Gagnfrœðingar áríð 1928.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.