Kjarninn - 19.12.2013, Qupperneq 18

Kjarninn - 19.12.2013, Qupperneq 18
k onan mín gaf mér gamlan Lenco-plötuspilara í afmælisgjöf í fyrra. Ég féll strax fyrir vínyl- plötunum eftir að hafa tengt spilarann við græjurnar mínar og byrjað að láta þær ganga. Það er eitthvað við það að heyra snarkið í plötunum og um leið tæran og góð hljóm. Sum lög bein- línis lifna við á vínyl, verða áheyrilegri en á öðrum formum. Rokk frá sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar nýtur sín á plötunum enda má segja að plötuspilararnir séu eins konar heimavöllur þessarar tónlistarstefnu. Led Zeppelin, Bítlarnir og Pink Floyd koma upp í hugann og Jimi Hendrix einnig. Ég hef ekki síður verið að hlusta á nýrri tónlist á vínyl; hipphopp, indírokk, popp og margt þar á milli, meðal annars íslenska tónlist sem hefur verið gefin út á plötum með metnaðar fullum hætti undanfarin ár. Nokkur lög hafa staðið upp úr og dregið fram það besta við plötuhlustunina. Hér fer Topp 5 listi yfir þau lög sem njóta sín best á vínyl. nálarsnarkið gefur lögunum nýtt líf TónlisT Magnús Halldórsson magnush@kjarninn.is 01/01 kjarninn TónLiST valdimar – ég man Hljómsveitin Valdimar, með Valdimar sjálfan fremstan í flokki, hefur getið sér gott orð fyrir góða tónlist og vandaða. Lög sveitarinnar eru þannig úr garði gerð að hljómur vínylplötunnar nýtur sín vel. Lagið Ég man er sérstaklega ljúft. Rödd Valdimars er góð í snarkinu, þétt og svöl. Ég skil vel að plötur frá Valdimar fáist í búðum og að útgáfan sé ekki bundin við geisladiska og stafræna útgáfu. Það ætti að vera mikil eftirspurn eftir vínylplötum frá hljóm- sveitinni miðað hversu vel lögin hljóma undir nálinni. Cypress hill – hits from the Bong Það má vera að flest lög bandaríska rappteymisins Cypress Hill fjalli um kannabisreykingar og baráttuna í fátækrahverfum bandarískra stórborga. Það breytir þó engu um það að lög þessa bands eru stórkostleg og vönduð. plötuspilarinn kallar fram það besta í Cypress Hill, ekki aðeins vegna þess að afslappað nálarsnarkið fellur vel að taktinum í rappinu heldur ekki síður vegna þess sem fylgir því að njóta þess að hlusta á plötu. Það er að velta fyrir sér textunum, smáatriðunum í rappinu, taktinum sem er undirliggjandi og heildinni sem sungið er um. Lagið Hits from the Bong af meistaraverkinu Black Sunday er sérstaklega notalegt á vínyl. Melódían úr hinu klassíska Son of a preacher er undirliggjandi, sem fellur vel að nálarhljóðinu. poison – Every rose has its Thorn Glysþungarokkið er eiginlega fundið upp fyrir vínyl. Þar eru nokkur atriði sem skipta miklu máli. plötuumslögin sjálf eru mikilvæg. Stórar myndir, mikil orka, vöðvastælt fólk, mikil ævintýramennska. Stundum eru plötumslög glysþungarokksins epísk listaverk. Yfirborðsmennskan er eitt helsta einkenni þessarar tónlistarstefnu en ég viðurkenni það fúslega að mér finnst yfirborðs- mennskan sjálf eitt það skemmtilegasta við glysþungarokkið. Hljómsveitirnar eru ekki að taka hlutina of alvarlega, lögin eru oftar en ekki öfgadramatísk, mikilfengleg. Klassíska þungarokksballaðan Every Rose Has its Thorn með poison – sem er meðal annars að finna á plötunni Metal Ballads – hefur þetta allt. Vínyllinn færir laginu vængi og maður getur leyft sér að brosa út í annað yfir textanum. En öllu gamni fylgir einhver alvara. megas – Tvær stjörnur Megas er menningarlegt stórvirki og hefur fyrir löngu komist á þann stall í íslenskri menningu sem hann á skilið. Það er að vera einn á eigin stalli, einkum þegar kemur að textum. En lagasmíðarnar eru líka, þegar best lætur, algjörlega framúrskarandi og lögin hans mörg hver tímalaus snilld. nánast ósnertanlegar perlur. Lagið Tvær stjörnur er eitt hans besta lag, í mínum huga. fallegt lagt með fallegum texta. flutningur Megasar, í upphaflegri útgáfu þess, er einnig magnaður. Það kann að vera að stundum sé söngur Megasar ekki alltaf rétta svarið þegar kemur að lagasmíð hans, en oftast nær þó. Þegar Tvær stjörnur ganga hring eftir hring á plötuspilaranum er hverrar sekúndu notið. Ein af perlum íslenskra tónlistar. neil Young – after the Gold rush Hinn tæplega sjötugi kanadíski þjóðlagarokkari neil Young hefur glatt mig meira en flestir aðrir. Ekki fyrir svo löngu fann ég hina frábæru Live Rust plötu, með neil Young og sveit hans Crazy Horse. Á plötunni er að finna sextán tónleikaútgáfur af mörgum af bestu lögum neil Young. Upptökurnar ná að fanga einstaklega vel andrúmsloftið sem myndast á tónleikum með þessum stórkostlega listamanni. aðdáunaröskur inni á milli og síðan einbeitt grafar- þögn þegar hann syngur fínustu línurnar með sinni skæru og tæru rödd. Þó að öll lögin séu meira og minna stórkostleg er útgáfan af hinu goðsagnakennda after the Gold Rush mögnuð. Hún hentar líka vel fyrir plötuspilarann; hrá tónleikaútgáfa þar sem hæfileikar neil Young svífa yfir vötnum. Smelltu til að hlusta á lagið á YouTube Smelltu til að hlusta á lagið á YouTube Smelltu til að hlusta á lagið á YouTube Smelltu til að hlusta á lagið á YouTube Smelltu til að hlusta á lagið á YouTube
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Kjarninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.