Kjarninn - 19.12.2013, Page 73
Deildu með
umheiminum
samFélaGsmál
hversdagsreglur
Árni Helgason skrifar um hversdagslegar
aðstæður sem engar reglur gilda um
Þ
ótt lög og reglugerðir telji orðið þúsundir blað-
síðna koma upp aðstæður á hverjum degi sem
fólk þarf að leysa úr af eigin rammleik. Yfirleitt
tekst fólki vel til en stundum vandast málin og
erfiðar, jafnvel vandræðalegar, aðstæður geta
skapast í tómarúminu.
Hér verður farið yfir fimm slík tilvik, hversdagslegar
aðstæður sem engar reglur gilda um. Í fyrsta lagi er til
skoðunar hvor eigi að hringja til baka þegar símtal slitnar,
í öðru lagi hvort og þá hvenær gestgjafi eignist áfengi sem
er afgangs frá gestum eftir heimboð, í þriðja lagi hvort fara
megi fram fyrir gömlu röðina í verslun þegar nýr afgreiðslu-
kassi er opnaður, í fjórða lagi hvort henda megi rusli á gólfið
í bíó og svo loks hvort pör borgi tvöfalt eða jafnt á við ein-
hleypa í sameiginlegum gjöfum.
Allt eru þetta atriði sem hafa valdið gríðarlegri óvissu.
Hér þarf að viðhafa snögg viðbrögð og ekki gefst tími til að
halda þjóðfund með blöðrum og stikkorðum, heldur þarf
einhver að taka sér norður-kóreskt landsföðurvald og semja
reglur. Ég hef sem sagt ákveðið að taka það að mér.
hvor á að hringja til baka þegar símtal slitnar?
Upp getur komið sú hvimleiða pattstaða þegar það slitnar í
miðju símtali að báðir reyna að hringja til baka. Þá er á tali
hjá báðum út af því að þeir eru að hringja í hvorn annan. Svo
getur það gerst að báðir ákveða að hætta að reyna á sama
tíma og ekkert gerist í drykklanga stund, þar til báðir byrja
aftur. Svona getur þetta gengið í marga hringi.
Þetta er auðvitað bagalegt og einhver hagfræðingurinn
gæti sjálfsagt reiknað út samfélagslegt tap Íslendinga af
völdum þess hve miklum tíma er eytt í símtöl sem þessi á ári.
En um þetta á að gilda einföld regla sem eyðir óvissunni (og
sparar samfélaginu stórfé).
Reglan byggir á því að þátttakendum í símtali má skipta
í tvennt. Annars vegar er það leiðtogi símtalsins, það er sá
sem hringdi upphaflega, og hins vegar starfsmaður á plani
símtalsins, sá sem hringt var í.
Þegar hlutverkum hefur verið skipt með þessum hætti
einfaldast málið verulega. Leiðtoginn ber að sjálfsögðu alla
ábyrgð á því að hringja aftur ef svo illa fer
að sambandið slitnar en starfsmanni á plani
ber að halda kyrru fyrir á meðan og undir
engum kringumstæðum reyna að hringja til
baka, nema fyrirskipanir þess efnis berist
frá leiðtoganum, til dæmis í formi SMS-
skeytis.
Hér er því sett fram eftirfarandi regla:
Q Þegar símtal slitnar ber sá sem
KULQJGLXSSKDŮHJDOHL²WRJLV¯PWDOVLQV
ábyrgð á að hringja til baka í þann sem var
hringt í (starfsmann á plani símtals).
(LJQDVWJHVWJMDõ¡IHQJLVHPHUDIJDQJVIU¡JHVWXP"
Þetta er aðstaða sem oft kemur upp. Boðið er heim og
gestirnir taka með sér áfengi en skilja það eftir hjá gest-
gjafanum. Er við hæfi að gesturinn mæti síðar og endur-
heimti áfengið eða má gestgjafinn slá eign sinni á afganginn?
Hér getur til dæmis það vandræðalega augnablik orðið
að þegar gesturinn mætir einhverjum dögum síðar sé gest-
gjafinn í þann mund að dreypa á afganginum.
Almennt verður að miða við að gestgjafinn eignist það
áfengi sem skilið er eftir hjá honum, enda ekki hægt að
leggja það á gestgjafann að geyma áfengi vikum eða jafnvel
mánuðum saman. Þó þarf að huga að tvennu í þessu sam-
hengi. Fyrir það fyrsta, hversu veglegt var heimboðið og í
öðru lagi hversu verðmætt var áfengið fyrir gestinn?
Heimboð eru misvegleg. Þegar hópur ungra karlmanna,
svo dæmi sé tekið, hittist heima hjá einum þeirra er til-
gangurinn yfirleitt eingöngu að tryggja húsaskjól á meðan
áfengis er neytt og haldið á pöbbinn eftir á. Veitingar og
undirbúningur eru í lágmarki, ef einhverjar yfirhöfuð. Eftir
því sem aldurinn færist yfir og fólk gerist ráðsettara er meira
lagt í heimboðin og tilkostnaðurinn verður meiri.
Að sama skapi er áfengi mismikilvægt eftir aldri þess sem
á það. Ungt fólk hefur allajafna mikið fyrir því að útvega sér
áfengi og ver til þess töluverðu hlutfalli af ráðstöfunartekjum
sínum. Áfengi er dýrt hér á landi og okkur Íslendingum ekki
treyst fyrir því að kaupa slíka vöru fyrr en eftir tvítugt og þá
alls ekki í almennum matvöruverslunum. Eignarhald áfengis
er því þýðingarmikið fyrir ungt fólk sem hefur ekki efni á
því að fara á bari. Því er oft mikið á sig lagt til að tryggja sér
áfengi og ungt fólk gefur til dæmis hvert öðru ekki áfengi,
ekki frekar en fangar gefa hver öðrum sígarettur.
Allt hnígur þetta í þá átt að gestgjafi sem hefur haft ungt
fólk í heimsókn verður að stíga varlega til jarðar í að slá
eign sinni á afgangsáfengi. Eðlilegt er að gefa rúman frest í
slíkum tilfellum, í það minnsta vel fram yfir næstu helgi áður
en hægt er að ganga í birgðirnar sjálfur.
Þegar fólk eldist breytist þetta. Heimboð eru veglegri og
ýmsar aðrar skyldur en að útvega húsaskjól færast yfir á
gestgjafann, til dæmis matreiðsla og að bjóða upp á borðvín
með matnum. Gestgjafar í slíkum boðum eiga því almennt að
geta gengið að því sem vísu að það áfengi sem verður af-
gangs sé þeirra, enda hafa þeir lagt töluvert í boðið.
Að þessu sögðu verður að gæta að því að gestir í boðum
geti, áður en kvatt er, sótt það áfengi sem komið var með
í boðið, til dæmis ef gesturinn er með fleiri samkvæmi á
dagskránni um kvöldið. Best er að gera slíkt svo lítið beri á
og áður en kveðjuathöfn hefst, enda óþægilegt fyrir alla ef
hjartnæmar þakkarræður eru til dæmis brotnar upp með ósk
um að sóttir verði tveir bjórar í ísskápinn.
Hér er því sett fram eftirfarandi regla:
Q Áfengi sem verður afgangs í heimboði er eign gestgjafa frá
og með kveðjustund í heimboði.
Q 6«JHVWXULQQXQJXUD²£UXPJHWXUJHVWJMDŭHNNLVOHJL²HLJQ
sinni á afgangsáfengið fyrr en að liðinni einni helgi frá og
með heimboðinu.
má fara fram fyrir röðina þegar nýr afgreiðslukassi er
opnaður í verslun?
Í flestum verslunum landsins eru afgreiðslukassar skipu-
lagðir þannig að biðröð er við hvern og einn þeirra. Ef nýr
kassi er opnaður myndast því nokkurs konar villta vesturs
ástand meðal viðskiptavina sem rjúka úr gömlu röðinni til að
vera fyrstir í þá nýju.
Ef það eru til dæmis fimm manns í röð á kassa og þrír
þeirra ákveða að freista gæfunnar á nýja kassanum getur
sú staða komið upp að fimmti maðurinn í gömlu röðinni sé
kominn fram fyrir hina tvo.
Allir sjá hvers konar hrópandi óréttlæti slíkt hefði í för
með sér. Forgangur úr fyrri röðum verður að halda sér, enda
eru allir betur settir þótt röðin haldi sér og réttlætis kenning
John Rawls þannig uppfyllt. Sá sem var fimmti í gömlu
röðinni er nú skyndilega þriðji í þeirri nýju
og þannig koll af kolli.
Málið vandast þó ef tvær mismunandi
raðir koma saman í nýju röðina. Hvor röðin
hefur forgang í nýju röðina? Ef gæta ætti
ítrustu sanngirni þyrfti sennilega að leyfa
þeim sem lengst hefur beðið í annarri hvorri
röðinni að vera fyrstur og svo kæmi sá sem
lengst hefði beðið í hinni röðinni og svo
framvegis. Slíkt yrði þó augljóslega of flókið
og því verður að fara blandaða leið. Ef farið er úr tveimur
röðum verður sú röð sem fyrst kemur á nýja kassann að fá að
vera á undan. En hins vegar bera að virða innbyrðis skipan
úr gömlu röðinni.
Hér er því sett fram eftirfarandi regla:
Q HJDUQ¿UNDVVLRSQDVW¯YHUVOXQVNXOXÀHLUVHPIDUD\ŭU¼U
gömlum röðum vera jafnsettir innbyrðis á nýja kassanum.
0¡KHQGDUXVOL¡J³Oõ°E³"
Sjarminn við að fara í bíó liggur ekki síst í smáatriðunum.
Bíóferð er fullkomin afsökun til að raða í sig gosi, poppi og
nammi og fylla svo á í hléi með meira gosi og poppi, allt á
innan við tveimur tímum, og þurfa ekkert að spá í það hvað
verður um ruslið. Því er bara hent á gólfið og þykir sjálf-
sagt. Gamla tuggan sem er oft sögð við börn, „myndirðu
ganga svona um heima hjá þér?“ á til dæmis ekki við um bíó.
Enginn annar samkomustaður fólks býður upp á þennan
valkost. Í leikhúsi hendir enginn rusli á gólfið, hvað þá á
veitingastöðum eða kaffihúsum. Bíóferðir eru sakbitin sæla
okkar þegar kemur að rusli og tiltekt.
Á því hefur hins vegar borið upp á síðkastið að fólk sé
farið að fá samviskubit yfir þessu og sé jafnvel farið að
stunda vitleysu eins og að telja sig þurfa að að henda ruslinu
sjálft.
Rétt er að fyrirbyggja þennan misskilning alveg með eftir-
farandi reglu:
Q Réttur bíógesta til að henda rusli á gólf byggir á gamalli
venju og er skýr.
Borga pör tvöfalt eða jafnt á við einhleypa í sameigin-
legum gjöfum?
Algengt er í veislum, giftingum, afmælum og útskriftum að
hópur taki sig til og leggi saman í púkk fyrir gjöf. Kostnað-
inum er þá deilt jafnt á þá sem koma að gjöfinni en hvernig
á að telja pör í hópnum? Er parið talið sem einn eða tveir
hausar í púkkinu?
Pör geta lent í að ofgreiða í gjöfum ef telja á þau tvöfalt en
á móti kemur að þau geta líka sloppið ódýrt ef þau eru talin
sem einn haus, enda fær parið nafnið sitt á kortið, tekur þátt
í veislunni en borgar bara helming á við aðra.
Hér getur auðvitað skipt máli hversu vel parið þekkir
viðkomandi. Þekkja báðir makar þann sem býður eða bara
annar makinn? Önnur leið er að spyrja sig að því hvað myndi
gerast ef parið væri ekki saman, yrði báðum boðið í veisluna?
Að vísu verður að fara varlega í slíkt, enda kannski ekki mjög
rómantískt að byrja kvöldið á slíkum vangaveltum: „Ef ég
myndi hætta með þér þá myndi Maggi aldrei bjóða þér, ástin
mín.“
Þetta má einnig nálgast út frá veisluföngum – tekur mak-
inn mikið til sín í mat og drykk eða er hann neyslugrannur
og bara í vatninu? Ef svo er má færa rök fyrir því að óþarfi sé
að rukka hann fyrir gjöfina en ef hann er á beit horfir málið
öðruvísi við.
Ef allt er í hnút má hér henda fram ákveðnum Salómons-
dóm, í þá veru að pör greiði 1,5 á við einhleypa.
Hér er því sett fram eftirfarandi regla:
Q HJDUKµSXUÀU¯UH²DŮHLULVWHQGXUVDPHLJLQOHJD
D²JM¸IVNDOWHOMDS¸UVHPHLQQD²LOD¯JM¸ŭQQL
Parið skal þá gæta að því að neysla matar og
drykkjar í veislunni sé í samræmi við þetta hlut-
fall.
Q Þetta á þó ekki við ef báðir makar þekkja þann
VHPI¨UJM¸ŭQDVYRYHOD²ÀHLPKHI²LE£²XPYHUL²
ER²L² £VNDOSDUL²JUHL²DWY¸IDOW¯JM¸ŭQQL
Hugmyndin er sú að reglurnar verði kallaðar
„hversdagsreglurnar“ og fólk geti þá vísað til þeirra
þannig, samanber „þetta er bara alveg skýrt í
hversdags reglunum“.
„Þegar símtal
slitnar ber sá sem
hringdi upphaf-
lega (leiðtogi sím-
talsins) ábyrgð á
að hringja til baka í
þann sem var hringt
í (starfsmann á
plani símtals).“
„Þegar nýr kassi
opnast í verslun
skulu þeir sem fara
yfir úr gömlum
röðum vera jafn-
settir innbyrðis á
nýja kassanum.“
um höFundinn
Árni Helgason
er lögmaður hjá
CaTO lögmönnum.
01/01 kjarninn SaMfÉLaGSMÁL