Kjarninn - 16.01.2014, Page 75

Kjarninn - 16.01.2014, Page 75
02/03 Kjaftæði skilningarvita minna. (Núna væri ég til í að vera fluga á vegg ákveðinna fýlupúka sem eru á vinalistanum mínum og eru að lesa þennan pistil.) Reiði er föst stærð En nú þegar ég nálgast fertugsaldurinn, þar sem ég hef fylgst með þjóðfélagsumræðunni frá unga aldri, þá sérstaklega hvernig hún hefur mótast á tímum internets, megabæta, bloggs og virkra í athugasemdum, tel ég mig vera búinn að átta mig á henni. Ég tel mig vera tilbúinn að setja fram tilgátu. Hún er þessi: Við venjulegar kringumstæður er magn reiði í sam- félaginu á hverjum tíma föst stærð. Með öðrum orðum: Það eru alltaf einhverjir reiðir út af einhverju, alveg sama hversu mikið tilefni er til að vera reiður. Nú tek ég fram að það má vera reiður, og vissu- lega er tilefni til að vera reiður yfir ýmsu sem gerist. Til að mynda skil ég að mörgu leyti reiðina sem var ríkjandi haustið 2008, þegar fjármálakerfið hrundi, þó að sú reiði hafi reyndar gengið út í öfgar á köflum. En öðrum stundum er eins og sumir séu að leita sér að einhverju til að vera reiðir yfir. Þannig er eins og það sé alltaf sama reiðin í þjóðfélaginu en hún leiti í ákveðin málefni. Hún hagar sér eins og orka, en eins og við eðlisfræðispekingarnir vitum er ekki hægt að eyða orku, bara breyta formi hennar. aragrúi dæma Það er auðvitað aragrúi dæma um þessa reiði. Áhugasömum bendi ég á að opna Facebook, sem ég hef talað um. Væntan- lega þarf ekki að skruna lengi til að finna gott dæmi. Einnig gæti ég nefnt nokkra fjölmiðla, sem og nokkra valinkunna andans einstaklinga sem býsnast yfir öllum og öllu á Face- book. Ég þori að sjálfsögðu ekki að nafngreina þessa fjöl- miðla og einstaklinga, af ótta við að fá minn skerf í næstu reiðiúthlutun. „Ég legg til að í stað þessa reiði- kvótakerfis verði komið á sérstöku sóknardagakerfi.“

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.