Kjarninn - 27.03.2014, Blaðsíða 63

Kjarninn - 27.03.2014, Blaðsíða 63
06/07 pistill sem verksvið, ábyrgð og heimildir einstakra starfsmanna og stjórnenda koma fram og hvort farið sé eftir þessum regl- um. Innri endurskoðun kannar einnig hvort aðskilnaður í ósamrýmanlegum störfum sé nægjanlegur, til dæmis hvað varðar meðhöndlun fjármuna og bókhalds, og kannar enn fremur meðferð og varðveislu fjármuna. Þá skoðar innri endurskoðun hvort skráning, meðferð og varðveisla skjala sé í samræmi við verklagsreglur og margt fleira. Á síðasta ári voru unnar tólf sérstakar skýrslur af innri endurskoðun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið var yfir ýmsa þætti í starfsemi embættins. Þar á meðal voru skýrslur um meðferð og vörslu fíkniefna hjá embættinu, stöðu lögreglumála hjá einstaka starfsmönnum, framkvæmd sáttamiðlunar, meðferð haldlagðra fjármuna, afskipti af börnum og meðferð og vörslu haldlagðra muna svo nokkur dæmi séu nefnd. Innri endurskoðun kom einnig að ýmsum öðrum verkefnum, meðal annars ráðgjöf og umsögn um ýmsar verklagsreglur. Er þörf á frekara eftirliti með starfsemi lögreglu? Eins og rakið var í inngangi hér að framan hefur þeim sjónarmiðum verið fleygt að þörf sé á auknu eftirliti með starfsemi lögreglu og slíkt eftirlit þurfi að vera óháð starf- semi hennar, þ.e. ekki í höndum þeirra aðila sem hafi náin tengsl við hana vegna yfirstjórnarhlutverks. Að mínu viti er með engu móti hægt að taka slíkt eftirlitshlutverk alfarið úr höndum þeirra sem ábyrgð bera á tilteknum málaflokkum, þar sem órjúfanlegur þáttur yfirstjórnarhlutverks er að hafa eftirlit með þeirri starfsemi sem viðkomandi ber ábyrgð á og þar með möguleika til að taka til meðferðar kærur, kvartanir og ábendingar um það sem betur má fara. Á það hefur hins vegar verið bent að ríkissaksóknari sé daglega í nánu sam- starfi við lögreglu vegna rannsóknar sakamála og því kunni að vera óheppilegt að hann hafi enn fremur það hlutverk að rannsaka meinta refsiverða háttsemi einstakra starfsmanna lögreglu í tengslum við framkvæmd starfa þeirra. Fremur ætti að setja á laggirnar sjálfstæða einingu sem sinnti slíkum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.