Kjarninn - 27.03.2014, Side 62

Kjarninn - 27.03.2014, Side 62
05/07 pistill árum um framgöngu lögreglu gagnvart mótmælendum Kárahnjúkavirkunar og stóriðjuframkvæmda, svo dæmi sé nefnt. Hér hefur ekkert verið vikið að því mikilvæga eftirliti og aðhaldi sem lögreglan fær af hálfu fjölmiðla, sem fjalla mikið um starfsemi lögreglunnar almennt og einstök mál ef því er að skipta. Eftirlit innan lögreglunnar Til viðbótar því ytra eftirliti sem er með starfsemi lögreglu sinnir lögreglan sjálf margvíslegu eftirliti með starfsemi sinni. Hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur frá stofnun embættisins 1. janúar 2007 verið starfrækt sérstök deild innri endurskoðunar. Hún var sett upp í samræmi við tillögur Ríkisendurskoðunar um starfrækslu slíkrar starf- semi innan stofnana ríkisins og hefur það að meginmarkiði að viðhalda og tryggja sem mestan árangur af starfseminni, þar sem einkum er lögð áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir í stað endurskoðunar eftir á. Hlutverk innri endurskoðunar er að skoða, þróa og staðfesta tilvist og virkni innra eftirlits, m.a. með því að kanna að verklagsreglur og verkferlar liggi fyrir og farið sé eftir þeim. Með innra eftirliti er hins vegar átt við innbyggt ferli og stöðugar aðgerðir innan embættisins og hverrar starfseiningar fyrir sig sem stuðla að því að hún nái markmiðum sínum. Slíkt innra eftirlit er því hluti af starfsemi allra starfseininga embættisins og er því sinnt dag- lega af stjórnendum á hverjum stað með margvíslegum hætti. Meðal þeirra verkefna sem innri endurskoðun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sinnir er að kanna hvort stjórnendur og aðrir starfsmenn embættisins fari eftir lögum, reglugerðum og ákvörðunum sem stjórnvöld hafa sett um starfsemi þess. Kannað er reglubundið hvort fyrir liggi uppfærðar handbækur, verklagsreglur, verklýsingar og eftir atvikum myndrænir verkferlar um starfsemi sviða og deilda embættisins og veitt ráðgjöf um endurbætur í þessum efnum til styrkingar á innra eftirliti. Kannað er hvort fyrir liggi skýrar og greinargóðar skriflegar starfs- og verklýsingar þar

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.