Kjarninn - 27.03.2014, Side 72

Kjarninn - 27.03.2014, Side 72
02/04 markaðsmál lítið dæmi til að koma okkur af stað Google Drive er dæmigerð skýjalausn. Þessi grein er skrifuð á ritvinnsluforrit sem er innbyggt í Google Drive og ég nálgast í gegnum Chrome-vafrann. Það eina sem til þarf er tölva, nettenging, rafmagn og vafri – Google-fyrirtækið sér um afganginn. Skjalið er stöðugt vistað þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að tapa vinnu eða gögnum þó að ég loki vafranum eða ef það slokknar óvænt á tölvunni. Ég get unnið í greininni í spjaldtölvunni minni eða snjallsíma og deilt henni með eiginkonunni, svo að hún geti lesið greinina yfir og losað hana við verstu ambögurnar, og ritstjóra Kjarnans þegar ég tel mig vera búinn með hana. Þau geta sett inn athugasemdir og við getum öll unnið í skjalinu saman. Google geymir síðan þessa tímalausu snilld í gagnageymslu sinni eins lengi og ég kæri mig um. Upplýsingatækni í áskrift Tölvubúnaður í áskrift (e. infra structure as a service) er líklegast algengasta tegundin af skýjaþjónustu. Þjónustuaðilar leigja fyrirtækjum aðgang að netþjónum og öðrum tölvubúnaði eins og fyrirtækið þarf á hverjum tíma. Fyrirtæki setja upp vefsetur eða hugbúnaðarkerfi í gegnum fjaraðgang og greiða aðeins fyrir afnot af tölvubúnaði sem þau nýta. hraðari þróun og minni kostnaður Þjónustuaðilar veita einnig aðgang að tölvuumhverfi,(til dæmis stýrikerfi gagnagrunna og vefþjóna, en á ensku er þetta kallað platform as a service. Fyrirtæki leigja aðgang að tölvuumhverfinu og þróa hugbúnaðar- og veflausnir í því. Með þessu sleppa þau við að kaupa, reka og setja upp vél- og hugbúnað. Þetta hraðar þróunarvinnu og dregur úr kostnaði. Þeir þjónustuaðilar sem lengst eru komnir í þessum efnum sjá til þess að afkastageta forritunarumhverfisins skalist sjálfkrafa til eftir þörfum. Það þýðir að auðveldara er að mæta álagstoppum á vefsetrum eða notkun á hugbúnaði „Þau geta sett inn athuga- semdir og við getum öll unnið í skjalinu saman. Google geymir síðan þessa tímalausu snilld í gagnageymslu sinni eins lengi og ég kæri mig um.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.