Kjarninn - 27.03.2014, Side 64

Kjarninn - 27.03.2014, Side 64
07/07 pistill rannsóknum og eftir atvikum saksókn slíkra mála. Í tengslum við umræðu um auknar rannsóknar heimildir lögreglu hefur einnig verið fjallað um þörfina á auknu lýðræðislegu eftirliti með starfsemi lögreglu, þ.e. eftirliti sem væri í höndum kjörinna fulltrúa eða aðila sem tilnefndir væru af Alþingi. Slíkt eftirlit er til staðar með starfsemi öryggis lögreglu í nágrannalöndum okkar og er talið nauðsynlegt vegna þeirra auknu rannsóknarheimilda sem þar eru til staðar. Að mínu mati væri fengur að því fyrir lögreglu að eftirlit með starfsemi hennar væri eflt og þar á meðal með þeim hætti að þjóðkjörnir aðilar bæru ábyrgð á því. Í mínum huga er það óháð hugmyndum um auknar rannsóknarheimildir og til þess fallið að auka traust og skilning á störfum lögreglu. Ég tel það einnig vert frekari skoðunar að setja á laggirnar sjálfstæða einingu utan lögreglu sem hefði það hlutverk að rannsaka kærur vegna refsiverðrar háttsemi starfsmanna lögreglu, eftir atvikum í tengslum við ríkissaksóknara eða alfarið óháð og ótengt því embætti. Tillögur frá lögreglustjóra um aukið eftirlit með starf- semi lögreglu koma mögulega einhverjum á óvart, ekki síst í ljósi þess að innra og ytra eftirlit með þeirri starfsemi er í dag umfangs mikið og í höndum margra aðila innan og utan lögreglu eins og hér hefur verið rakið. Það er lögreglunni hins vegar afar mikilvægt að hún njóti víðtæks trausts eins og hún gerir í dag og því þarf að viðhalda og efla ef þess er nokkur kostur. Virkt og aukið eftirliti og fjölbreyttir möguleikar almennings til að koma á framfæri kærum, kvörtunum og ábendingum vegna starfsemi lögreglu, þar á meðal til óháðra aðila, er mikilvægur þáttur í því sem skoða þarf vel.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.