Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 20
306
Ljóslækningar.
[Stefnir
agnir losna úr kolinu, þær veróa
glóandi og senda út frá sér sterkt
ljós, sem inniheldur bæði hita-
geisla og mikið af ultrafjólublá-
um geislum.
Hitt er kvikasilfurslampinn eða
kvartslampinn. Eins og þegav
hefir verið tekið fram, komast
ultrafjólubláir geislar ekki í gegn-
um vanalegt rúðugler. En í gegn-
um svokallað kvartsgler komast
þeir nokkurn veginn eða hindr-
unarlítið. í þessum lampa er gler-'
hylki úr kvartsgleri, og í þessu
hylki er slatti af kvikasilfri. —
Sterkum rafmagnsstraum er veitt
inn í þetta glerhylki. Við ]>að
verður kvikasilfrið að glóandi
gufu og sendir þá frá sér sterka
bláa og ultrafjólubláa geisla.
í sólarljósi er ekki nema um
hálf áttund af ultrafjólubláum
geislum, þegar bezt lætur, en
kvartslampi gefur frá sér ultra-
fjólubláa geisla, sem nema meiru
en heilli áttund. En til þess að
þetta kvartsljós njóti sín sem
bezt og hafi sem mestar verk-
anir, verða að fylgja með ljós,
sem gefa frá sér hitageisla, er
hita upp hörundið; á þann hátt
veitir hörundið bezt ultrafjólu-
bláu geislunum móttöku.
Ultrafjólubláir geislar.
Það er nú svo, að jafnvel þó
hinum ultraf jólubláu geislum sól-
arljóssins veiti erfitt að ná yfir-
borði jarðar gegnum hið gufu-
og rykmettaða andrúmsloft, þá
geta þó þeir, sem ná yfirborði
jarðar, ef þeir skína á bert hör-
und, komist inn í hið örsmáa og
fíngerða háræðanet hörundsins,
og komið þar til leiðar feikna
breytingu á hinum lifandi efna-
skiftum líkamans. Nákvæmlega
hið sama á sér stað um ljósin frá
þeim lömpum, sem eg hefi þegar
um getið. Áhrif þeirra eru ekki
minni, nema meiri sé, samkvæmt
])ví, sem áður hefir verið sagt.
Þessi áhrif berast svo með blóð-
straumnum um allan líkamann, til
hverrar einustu frumu, sem
blóðið nærir. Áhrif hinna ultra-
fjólubláu geisla koma fram á
ýmsan hátt. Þannig koma þaru
til leiðar miklum vexti á litar-
efni blóðsins (Hæmaglobini).
Þetta litarefni svarar til blað-
grænkunnar hjá jurtunum. Ef
rauðu blóðkornin eru auðug af
þessu litarefni, veitir þeim létt-
ara að inna af hendi hið tvöfalda
starf, er þau hafa á hendi: sem
sé það, að flytja hverri fruma