Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Page 76
362
Gersemar sveitaþorpsins.
[Stafnir
SKAANE
Stofnsett 1884.
o»o
Höfuðstóll
12,000,000,00
Sænskar krónur.
•oíoaoioioHoiosoioioioS
Aðalumboðsmaður á íslandi:
INGIMAR BRYNJÓLFSSON
(I. Brynjólfsson & Kvaran).
Rey kj a vik.
sér samboðinn. Og — hún vildi
ekki við neinum manni líta. Svo
sneri hún baki við þér og lítils-
virti þínar helgustu tilfinning-ar,
enda þótt hjarta hennar væri rétt-
mæt eign þín. Þess vegna varst
þú enginn þjófur, þó að þú vildir
helga þér hana. En hins vegar
hamstola og viti þínu fjær — af
sársauka, sem hún olli þér. Og
mér er nær að ætla, að hennar sök
hafi verið meiri en þín. Því að
hún var þér ekki hreinskilin.
Og nú er að flytja þér svar
mitt; það er þetta: „fyrirgefðu
mér. Eg beitti þig órétti. Því —
eg elskaði þig!“
Svo gengur hún til hans, þar
sem hann liggur, og fellur á kné
fyrir honum.
Hann hefir hlustað á mál henn-
ar með vaxandi ótta og felmturs-
fullu augnaráiði. Nú sprettur
hann upp — og hrekkur út í horn,
það er fjarst var, og andvarpar
sem deyjandi maður: „Madonna
mia, madonna mia*)!“
Þá fellur hann aftur flatur á
gólfið, byrgir ásjónu sína, og þok-
ar sér nær henni, þar sem hún
krýpur keik og róleg — — og
engist af hugarkvölum ....
*) Guösmóðir mín, GuðsmóCir mín.