Sagnir - 01.04.1986, Page 39
Helmingarfélög hjóna
Kaupmáli og helmingarfélag. Upphaf hins
rómaða bréfs Sueins Sumarliðasonar og
Guðríðar Finnbogadóttur. Oft sést uísað til
þess í bréfum. dómum og uitnisburðum
sem prentaðireru i Fornbréfasafninu. Finn
bogi lögmaður sá til þess að það sem
þarna uarsamið um gleymdist ekki.
ingarfélögum fái meö þessu aukið
neitunarvald í sambandi við meðferð
eignanna. Eru þær kannski að gæta
hagsmuna erfingja sinna?
Allt frá þjóðveldistímanum miðaði
löggjöf að því að hamla gegn eigna-
tilfærslu á milli ætta.44 Með helming-
arfélögunum varð á því nokkur breyt-
ing og gátu eignirnar blandast meira
við erfðaskiptin en áður. Dómar eru
nokkrir til þar sem deilt er um eignar-
rétt á jörðum út frá helmingarfélög-
um.45 Sumir högnuðust vel. Aðrir
misstu sþón úr aski sínum. Mesta
breytingin við erfðirnar; hefði hjónun-
um aukist fé var ætt konunnar í helm-
ingarfélaginu líklegri til að bera meira
úr býtum en annars. Áhrif erfingjanna
á eignarform hjónabandanna
styrktust. Tilgangurinn virðist ekki
vera að auka rétt konunnar, eins og
Arnór nefnir, þó svo að karlinn mætti
ekki ráðstafa neinum eignum án
samþykkis hennar meðan hjóna-
bandið stóð. Þetta útilokar samt ekki
að konur hafi getað ráðiö meiru innan
hjónabandsins ef þær voru í helming-
arfélagi en annars. Höfðingjastéttin
var sterk á íslandi á 15. öld, og þá
489.
á Þrerá.
11. September 1485.
20. Apríl 1486.
KaupmjLlabréf Sveins Sumarliðasonar og Guðríðar Finnboga-
dóttur.
AM. Fasc. XXVII, 45, frnmritið á skinni með hendi Finnboga lög-
manns. Af átta iunsiglum eru nú fimm fyrir, sum töluvert brákuð. —
Apogr. 232. — Sbr. kaupmálabréf Sigurðar Þorleifssonar og Kristínar
Finnbogadóttur frá 24. Júuí 1489.
kaupmalabref Sueins Sumarlidasonar og
Gudríjdar Fimbogadottur.1)
Ollum monnum þeim sem þetta bref sea edr heýra
senda eirekr einarsson og jon gislason prestar. paall brandz-
son. þorsteinn þorleifsson. jon arngrimsson. thomas suein-
biarnarson. asgrimr hallzson og þormodr þormodzson leik-
menn Q. G. og sina kunnigt giorandi at sub anno gracie.
0D.° cd.° lxxx0 v.° a svnnvdagin næsta epter nativitatem
beate marie- virginis óx þveród j laxardal vorvm vier j hia
savm og heýrdvm di ord og handaband þessara manna
svmarlida eirekssonar og sveins sonar hans. af eirni halfu.
en finnbogha jonssonar. og gudridar dottr hans af annari.
') Utan á bréfinu með tvennslags böndum allgömlum.
36*
voru nokkrar höfðingskonur áberandi
í þjóðlífinu. Margar þeirra sem eitt-
hvað kvað að voru ekkjur, en þær
höfðu meiri lagalegan rétt en giftar
konur. Dæmi um þær eru Ólöf ríka og
Vatnsfjarðar-Kristín. Konur almennt
réðu ekki hverjum þær giftust og ekki
hvernig samið var um eignirnar í
hjónabandinu. Því má velta fyrir sér
hvort ættingjar kvennanna hafi talið
sig geta haft meiri áhrif á afdrif ætt-
argóssins væri samið uþp á helming-
arskipti. Ekki má heldur gleyma því
að vel var vandað til makavals hjá
þeim ríku, og þar gátu verið á ferðinni
eftirsóknarveröar eignir. Af helming-
arfélagsbréfunum sést að við gifting-
una hafi brúðguminn stundum gefið
brúði sinni stórgjafir, oft margar jarðir.
Þetta voru ýmiskonar gjafir, og höfðu
þær mismunandi uppruna og merk-
ingu. Hvernig tengjast þær helming-
arfélögunum?
Gjafirnar
Við upphaf hjúskapar var alltaf geng-
ið frá eignum hjónaefnanna, óháð því
hvort gerður var helmingarfélags-
samningur um leið eða ekki. Ekkert er
sagt um hvernig gjafamálum skuli
háttað í réttarbótum Hákonar kon-
ungs um helmingarfélög, né í Jóns-
bókarákvæðum um hjónafélög.
Landslög kváðu á um að nánustu
ættingjar konu skyldu ráða giftingu
hennar. Giftingarmaður hennar
samdi um heimanfylgjuna sem hún
hafði með sér úr föðurgarði, og tilgjöf-
ina sem brúðguminn gaf á móti.46
Þetta nægði að semja um til að hjóna-
bandið yrði löglegt, en það var mikil-
vægt vegna erfðaréttarins. Með
réttarbót Eiríks konungs Magnússon-
ar við Jónsbók 1294, er það skilyrði
sett að hér á landi mætti ekki gefa
konu meiri tilgjöf en 60 hundruð, jafn-
vel þótt menn væru ríkir.47 Þessa
hámarkstilgjöf gefur Sveinn Sumar-
liðason Guðríði Finnbogadóttur, en
þau gerðu kaupmála 1485/1486.
Bent hefur verið á hann sem gott lög-
fræðilegt dæmi um stofnun helming-
arfélags.48 Guðríður fékk líka 40
hundruð í morgungjöf og bekkjargjöf.
Engin fjórðungsgjöf var nefnd hjá
þeim, en þær komu stundum fyrir í
SAQHIR 37