Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Side 70

Sagnir - 01.04.1986, Side 70
J^^andarísk herstöö hefur veriö á íslandi í aldarþriöjung og Bandaríkja- menn hafa átt kjarnorkuvopn allan þann tíma. Áður en Bandaríkjaher fékk aðstöðu hér á landi 1951 haföi Island gerst aöili aö Atlantshafs- bandalaginu. Hver hefur stefna ís- lenskra stjórnvalda verið gagnvart staösetningu kjarnorkuvopna á ís- lenskri grund þennan tíma? Þegar ísland gekk í NATO áriö 1949, var í viðræðunum sem á undan fóru lögö áhersla á, aö íslendingar myndu ekki „hafa erlendan her eöa herstöðvar í landi sínu á friöartím- um“.2 Af þessari afstööu leiddi aö sjálfsögöu aö hér yröu engin kjarn- orkuvopn, en á þau er ekki minnst í samningnum. En friðartímarnir stóðu ekki lengi. Árið 1951 kom hingað bandarískur her. í „varnarsamningnum" sem gerður var milli stjórna íslands og Bandaríkjanna af því tilefni, er hvorki minnst á kjarnorkuvopn né annan vopnabúnaö, en sagt að Bandaríkin taki að sér aö „gera ráðstafanir til varnar íslandi" fyrir hönd NATO.3 Enga vísbendingu er að finna í þing- skjölum um að hér skuli staðsett kjarnorkuvopn, hvorki hjá stuðnings- mönnum né andstæöingum her- stöðvasamningsins. Þó vísaöi Einar Olgeirsson í ummæli bandarísks öldungadeildarþingmanns þess efnis aö til greina kæmi aö koma kjarn- orkuvopnum fyrir á íslandi, yrðu Bandaríkjamenn aö flytja þau frá Bretlartdi. Einar taldi þetta, ásamt svo mörgu öðru, mæla gegn samþykkt „vamarsamningsins".5 Fylgismenn samningsins svöruðu þessu ekki beint, en Bjarni Benediktsson utan- ríkisráðherra sagöi Breta ætla aö leyfa Bandaríkjamönnum aö hafa flugstöðvar áfram í Bretlandi, „vegna þess aö það sé nauðsynlegt vegna heimsfriðar og öryggis".6 Hann sagöi samning íslendinga við Bandaríkin vera „vamarsamning" en ekki „árás- arsamning“ og ekki þyrfti aö túlka hann frekar. Áriö 1953 var á Alþingi rædd þings- ályktunartillaga um að skora á Bandaríkin að fallast á aö hætta til- raunum meö vetnissprengjur. í þeim umræðum var ekki talað um þann möguleika aö kjarnorkuvopn yrðu geymd á íslandi. Reyndar má segja að málið hafi verið rætt á „alþjóðleg- um forsendum", en enn virtist hugs- anleg tilvist kjarnorkuvopna á íslandi ekki hafa verið ofarlega í hugum al- þingismanna.7 Opinber stefna íslenskra stjórn- valda gagnvart staðsetningu kjarn- orkuvopna á íslandi var óljós, jafnvel engin, á þessum árum. Ekki vartekið af skarið um hvernig þessu skyldi háttað, en árið 1958 skýrðist málið lít- ið eitt. Bulganin lætur í sér heyra Bulganin, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, reifaði stofnun kjarnorkuvopna- lauss svæðis á Norðurlöndum í bréfi til Hermanns Jónassonar, forsætis- ráðherra íslands, árið 1958. Bulganin lýsti þar þeirri stefnu Sovétríkjanna, að á meðan Norðurlönd hefðu ekki tekið formlega ákvörðun um að leyfa ekki uppsetningu kjarnorkuvopna, hefðu þau enga tryggingu fyrir því að þessum vopnum yrði ekki beitt gegn þeim í stríði. Hann minntist einnig á herstöð Bandaríkjanna á íslandi og sagði: „Sá möguleiki að staðsetja kjarnavopn í þessari herstöð er e. t. v. ekki útilokaður, en sú staðreynd setur íslensku þjóðina í hættu, sem engan veginn er smávægileg."8 Hermann Jónasson svaraði um hæl og vísaði í yfirlýsingu íslensku ríkisstjórnarinnarfrá 7. maí 1951. Þar segir að samkomulag sé um það, á milli íslendingaog Bandaríkjamanna, að koma eingöngu upp mannvirkjum til varnar en ekki til að gera árásir. Þessi afstaða er sögð óbreytt og hún leiði til þess að hér verði ekki staðsett annars konar vopn en íslendingar telji nauðsynleg til varnar. Og Her- mann bætti við: „Um kjarnorku- eða eldflaugastöðvar á Islandi hefur aldrei verið rætt og engin ósk komið fram um slíkt.“9 Af svari forsætisráðherrans, Her- manns Jónassonar, má a. m. k. ráða, að árið 1958 hafi íslenskir ráðamenn verið vissir um að hér væru ekki stað- sett kjarnorkuvopn og að Bandaríkja- menn hafi ekki óskað eftir því. En Hermann útilokar þó ekki þann möguleika að kjarnorkuvopnum verði » Á Vellinum. Nokkrir yfirmenn á Keflauíkur■ fiuguelli um miðja öldina. 68 SAGMIR J
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.