Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Side 76

Sagnir - 01.04.1986, Side 76
F X ulltrúar, sem kjörnir höföu verið í stjórn Alþýðusambandsins á 22. þingi þess 1948, voru kosnir samkvæmt sama mynstri og þáverandi ríkis- stjórn íslands. Sat þá ríkisstjórn Al- þýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forsæti Stef- áns Jóhanns Stefánssonar.1 Þetta samstarf „hægri manna“ í stjórn Al- þýðusambandsins var endurnýjað á 23. þingi sambandsins 1952. Asama tíma geisaði „kalda stríðið í innlend- um og erlendum stjórnmálum". Var hin almenna stefna stjórnarflokkanna að einangra sósíalista frá allri stjórn- un í landinu. Þeim öflum er náð höfðu undirtökum á 22. þingi A.S.Í. tókst einnig að ná tökum í fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Þar með höfðu hægrimenn og sósíal- demókratar undirtökin í hinni faglegu hreyfingu verkafólks. Þegar fram liðu stundir, fór að gæta óánægju innan Alþýðuflokksins með þetta samstarf við „borgaraflokkana" (Sjálfstæðisflokk og Framsóknar- flokk). Félagar í flokknum voru ósam- mála stefnu formannsins, Stefáns Jóhanns Stefánssonar, um að ekkert samstarf skyldi vera við Sósíalista- flokkinn. Þeir, sem einkum gagn- rýndu þessa stefnu Stefáns, voru Hannibal Valdimarsson og Gylfi Þ. Gíslason.2 Á flokksþingi Alþýðuflokksins í lok nóvember 1952 gerðist sá atburður, að formanni flokksins var steypt af stóli og í hans stað var kosinn Hanni- bal Valdimarsson. í miðstjórn flokks- ins völdust einkum stuðningsmenn Hannibals, en fulltrúar hægri manna sem sæti áttu í fyrri miðstjórn gáfu fæstir kost á sér til endurkjörs.3 Hannibal hóf að boða einingu vinstrimanna í Alþýðusambandinu og bar þessa skoðun fram á síðum Al- þýðublaðsins. Þetta leiddi til þess að sósíalistar og alþýðuflokksmenn tóku höndum saman um allt land og undir- bjuggu komandi Alþýðusambands- þing í anda einingar.4 Ekki var fyrrverandi forysta í Al- þýðuflokknum ánægð með þessa stefnu Hannibals og á flokksþingi haustið 1954 var honum vikið frá. Hægrimenn náðu þar öllum þeim tök- um á flokknum sem þeir höfðu misst á flokksþinginu 1952. Hannibal var einnig vikið tafarlaust úr ritstjórn Al- þýðublaðsins.5 Eftir að búið var að víkja Hannibal úr ritstjórn Alþýðublaðsins var breytt um ritstjórnarstefnu. Blaðið lagðist nú gegn samvinnu við sósíalista á Al- þýðusambandsþinginu og vildi halda óbreyttri stjórn sambandsins. Þótt hægrisamstarf hafi verið í síðustu stjórn, voru alþýðuflokksmenn þar samt í meirihluta. 24. þing A.S.Í. hófst 18. nóv. 1954 og því lauk fimm dögum seinna. Þetta var fjölmennasta þing sem nokkru sinni hafði verið haldið, en 322 þing- fulltrúar sátu þingið af þeim 332 sem rétt höfðu til þingsetu. Hannibal Valdi- marsson var kjörinn forseti þingsins, og hlaut 165 atkvæði. Fulltrúi hægri- manna, Hálfdán Sveinsson frá Akra- nesi, hlaut 130 atkvæði. Eftir að átökum um þingforystu og rétt til þingsetu lauk hófust umræður um verkefni, störf og vandamál sam- takanna. Unnið var að ályktunum um brýnustu hagsmunamál verkafólks. í þeim umræðum bar lítið sem ekkert á þeim klofningi milli hægri og vinstri sem einkenndi fyrri hluta þingsins. Þegar til atkvæða kom um ályktanir þessa fjölmenna þings, voru þær samþykktar einróma. Það var því ein- hugur um stefnuna sem heildarsam- tökin áttu að fylgja.6 Er velja átti nýja sambandsstjórn fyrir samtökin, klofnaði þingið aftur upp í stríðandi fylkingar. Var fyrst gengið til kjörs á forseta Alþýðu- sambandsins; Hannibal var í boði fyr- ir vinstrimenn en Jón Sigurðsson af hálfu hægrimanna. Hlaut Hannibal 174 atkvæði en Jón 146 atkvæði. Það dró enn saman með fylkingunum þegar varaforseti og ritari Alþýðu- sambandsins voru kjörnir. Fulltrúar vinstrimanna, Eðvarð Sigurðsson og Magnús Bjarnason, voru kjörnir með tveggja og eins atkvæðis mun.7 Þrátt fyrir að „einingarmenn" hafi náð stjórn í Alþýðusambandinu þá voru einungis tveir stjórnarmenn úr Sósíalistaflokknum.8 Hannibalistar, ef svo má kalla vinstriarm Alþýðuflokks- ins sem studdi Hannibal Valdimars- son, höfðu meirihluta fulltrúa í hinni nýju stjórn sambandsins. Það hefur verið erfitt fyrir Sósíalistaflokkinn að sætta sig við svo naumt skammtaða fulltrúatölu í sambandsstjórn. Þeir urðu að halda Birni Bjarnasyni, for- manni Iðju, fyrir utan stjórnina, þrátt fyrir mikilvægi félagsins í þessum sigri vinstrimanna. Um svipað leyti náðu „einingarmenn" öruggum meiri- hluta í fulltrúaráði verkalýðsfélag- anna í Reykjavík.9 Uppsögn samninga Verkalýðshreyfingin hóf snemma á árinu 1955 undirbúningsstarf fyrir komandi kjaraátök. Á fundi miðstjórn- ar A.S.I. 12. janúar 1955 ákvað mið- stjórnin að leita til stjórnar Fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, með ósk um að formenn félaganna á Faxaflóasvæðinu yrðu kallaðir sam- an á verkalýðsmálaráöstefnu.10 Var ákveðið að kalla saman formennina 19. janúar. Á ráðstefnuna mættu full- trúar 29 félaga frá Reykjavík og 10 félaga utan Reykjavíkur. í lok ráð- stefnunnar var svo gefin út sameigin- leg yfirlýsing sem var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn einu: Ráðstefna verkalýðsfélaganna í Reykjavík og nágrenni, haldin 19. janúar 1955, lýsir yfir að hún telur nauðsyn bera til að verkalýðsfélög- in segi upp samningum sínum fyrir 1. marz n.k., til að knýja fram kjara- bætur, svo að tekjur 8 st. vinnu- dags nægi til mannsæmandi fram- færzlu meðalfjölskyldu.11 Sama dag og verkalýðsráðstefnan var haldin, óskaði Ólafur Thors for- sætisráðherra eftir viðræðum við miðstjórn Alþýðusambandsins „um, hvort þau frestuðu samningsuppsögn til vors (1. júní) gegn því, að ríkis- stjórnin lofaði að gera allt, sem í hennar valdi stæði, til þess að semja um lækkað verðlag við nokkur til- greind stórfyrirtæki, sem einna mest áhrif gætu haft á verðlag í landinu".12 Hér réttir forsætisráðherra fram sáttarhönd. Hann treysti sér þó ekki til að tryggja það að þessar verðlækk- anir kæmu til framkvæmda á neinn hátt.13 Miðstjórn A.S.Í. tók þessari mála- leitan forsætisráðherra ekki illa, þó að ekki væri hún tilbúin að fresta verk- falli. í því sambandi var bent á, að 74 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.