Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.04.1986, Qupperneq 87

Sagnir - 01.04.1986, Qupperneq 87
Ólafur Ásgeirsson Vörn vegna meintrar árásar á pólitíska æru Jóns heitins Baldvinssonar s F 1—Jq ætla aö myndast viö aö svara gagnrýni Helga Skúla Kjartanssonar á grein mína í Sögnum 1985 sem fjallaði um stjórnmálahugmyndir Jóns Baldvinssonar. Beinir Helgi mikilli skæöadrífu aö skrifum mínum og er illt aö búa undir án tilburöa til varnar. Mér virðist sem Helgi beini spjótum sínum einkum aö tveim þáttum í greininni. í fyrsta lagi aö því hvernig ég nálgast viöfangsefnið, en Helgi er andvígur því aö sagnfræöingar dæmi fortíðina. í öðru lagi deilir hann á „glannalegar ályktanir" af þeim heim- ildum sem vitnaö er til. Af hlutdrægu hlutleysi Hvaö fyrra atriðiö varöar segi ég hreint út: Ég er ósammála, og mun nú reyna aö færa rök fyrir því. í gagnrýni sinni segir Helgi að viö.segjum frá fortíðinni, reynum aö útskýra hana, en við eigum helst ekki aö ríf- ast við hana." Og síðar í ritdómnum leggur hann einskonar innlifunar- kenningu þessu til grundvallar. Nú skal þaö viðurkennt að nauðsynlegt er aö setja sig inn í þankagang þess tíma sem um er fjallað, eftir því sem tök eru á. En þaö er óhugsandi aö firra sig frá þeim veruleika sem viö hrærumst í hverju sinni. Þær spurn- ingar sem viö spyrjum, þau viðfangs- efni sem við veljum, þau dæmi sem við tökum úr heimildunum - allt þetta ræöst aö töluverðu leyti af viðhorfum rannsakandans. Sagnfræöingur sem þykist vera hlutlaus getur hæglega dregiö fram hlutdræga mynd með því aö veita ákveönum þætti meira rými í skrifum sínum heldur en öörum. Og þaö þótt hann geri sér litla grein fyrir því hvers vegna. Og vel að merkja: þaö er líka skoðun aö predika skoöanaleysi. í stað þess aö sveipa sig gatslitinni hempu ímyndaðs hlutleysis er bæöi hreinskilnara og heiöarlegra aö hver komi til dyranna eins og hann er klæddur. Ef fræðimaðurinn veitir koll- egum sínum og öörum milliliðalausan aögang að viðhorfum sínum, eöa í öllu falli þeim forsendum sem liggja til grundvallar skrifunum, skapast vett- vangur fyrir skoöanaskipti. Með tilvís- un í heimildir veitir hann aðgang aö forsendum þeirra dóma, eöa álykt- ana, sem hann dregur af efninu og þeir sem vilja geta fett fingur út í skrifin, finnist þeim ástæöa til. Sú loðmulla sem tíðkast hefur í allt of rík- um mæli meðal íslenskra sagnfræö- inga hefur drepiö í dróma þá um- ræöu sem sker raunverulega úr um þaö hvort greinin er lifandi eöa dauð. Iðnbylting eða sjálfsþurft Þá er aö minnast á hina efnislegu gagnrýni Helga Skúla. Hann kvartar yfir því aö ég dragi ályktanir af fáum dæmum og er þaö í sjálfu sér rétt. Enda er þaö tekið fram í greininni aö Jón var pennalatur maður. Hins veg- ar er engum blöðum um þaö aö fletta aö hann leit á aukiö landnám í sveit- um sem raunhæfa framtíðarlausn á atvinnuleysisvandanum. Er í grein minni vitnaö til Alþingistíðinda frá ár- unum 1923, 1924 og 1927, þar sem þetta viðhorf Jóns kemurfram. Væri í sjálfu sér fullnægjandi aö benda á hans eigið frumvarp um þetta efni frá 1927. Helgi segir vafasamt aö draga þá ályktun af þessu að Jón hafi skort stéttarvitund. En er ekki augljóst aö Jón taldi atvinnustöðu manna hafa takmörkuö áhrif á viðhorf þeirra? Tæpast heföi Jón hvatt til landnáms í sveitum ef hann heföi taliö þaö skeröa hagsmuni verkafólks. Hann skrifaði einmitt grein í Alþýöublaöiö 3. janúar 1934 þar sem hann taldi eöli- SAQMIR 85
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.