Sagnir - 01.04.1987, Blaðsíða 27
nema sjö býli á þessum svæðum í
auðn, sum reyndar fyrir bólu. Þau
ættu því ekki að vega þungt.
Lækkun á landskuld og leigum
veita takmarkaðar upplýsingar um
kjör leiguliða, fleiri drætti hlýtur að
þurfa til að skapa heildstæða mynd.
Sjávarfang og bústofn skipta þar
mestu. En þeir drættir verða ekki
dregnir í þessu stutta skrifi.
Landskuld og leigur
Með þeim fyrirvörum sem á hefur
verið minnst er óhætt að fullyrða að
landskuld hafi lækkað um 18,4% á
báðum þessum svæðum
samanlögðum (sjá töflu I). Það segir
í sjálfu sér ansi lítið um áhrif á af-
komu hvers bónda, jafnvel ekki um
breytingar innan hreppa því þær
eru afar mismunandi (sjá mynd I).
Hver alin vegur þungt vegna þess
hve úrtakið er lítið. Prentvilla eða
missögn, að ekki sé talað um
skekkju í reikningum, getur haft
ótrúlega mikil áhrif á niðurstöðuna.
Þessi tala gefur þó tilefni til að
álykta að lækkun landskuldar á
landsvísu hafi verið í námunda við
20%, þó mismunandi eftir aðstæð-
um í hverju héraði.
Ástæðan skyldi maður ætla að
væri hin stórfellda fólksfækkun
sem varð eftir að Stórabóla hafði
grisjað í híbýlum hárra sem lágra.
Þeir sem geispuðu golunni höfðu
enga þörf fyrir jarðnæði af þessum
heimi; hefur því ásókn í hokrið
minnkað að miklum mun. Jafn-
framt hafa þeir fáu, sem sældust
eftir þeim örreytiskotum sem fáan-
leg voru, getað boðið þau niður;
byrðar leiguliðanna hafa minnkað í
sæmilegu réttu hlutfalli við fólks-
fækkunina.
Auðsætt er að nokkur munur er á
milli sýslnanna; landskuld lækkar
meira á Vestfjarðasvæðinu en í
Vaðlaþingi. Framleiðis er hyldýpis-
munur milli hreppanna á Vestfjörð-
um. En vegna ofannefndra varnagla
er óvarlegt að draga miklar álykt-
anir; þegar einasta eru um tíu býli í
hreppi er hver alin geysiþung á
metum.
Sömu hugsanir kvikna er tölur um
leigufé eru aðgættar (sjá töflu II).
Fækkunin er til marks um að færri
hendur hafa verið til að vinna bú-
verkin og leiguliðar hafa verið
tregir að blæða umfram ýtrustu
nauðsyn.
TAFLAI Landskuld
Svæði 1696 1710/12 lækkun
Eyjafjarðarsvæði 11599 10152 12,5%
ísafjarðarsvæði 13478 10323 23,4%
Samtals 25077 20475 18,4%
Landskuld er metin í álnum upp á landsvísu. Rétt er að taka fram að leigukúgildum
fækkaði meira í Eyjafirði en á hinu svæðinu (sbr. töflu II).
TAFLAII Leigur
Svæði 1695 1710/12 fækkun
Eyjafjarðarsvæði 1902 1451 23,7%
ísafjarðarsvæði 2989 2332 22,0%
Samtals 4891 3783 22,7%
F jöldi leigufjár í hvorri sýslu og samtals, leigufé er metið í ærgildum og svo framvegis
nema annars sé getið. Munur á leigum milli svæða er töluvert minni en milli land-
skuldar (sbr. töflu I).
Fjöldi ærgilda í hver jum hreppi. Hér gildir hið sama um frávikin í Eyrarsókn og Vatnsfjarðarsveit
(sjá texta við mynd I), þar fóru flestir bæir í eyði vegna bólu. Og í Saurbæjarhreppi
fækkar um 84 ærgildi samanlagt á tveimur bæjum af ótilgreindum orsökum; því verður
frávikið þar svo hátt.
SAGNIR 25