Sagnir - 01.04.1987, Síða 44

Sagnir - 01.04.1987, Síða 44
Dæmigerður sveitabær a íslandi á 19. öld og fram á þá 20. Kýr voru yfirleitt fáar á hverjum bæ, oft tvær eða þrjár og sjaldan f leiri en fimm, nema a storbýlum. Á myndinni s jást því sennilega allar kýr á bænum. Bak við þær eru konurnar f jórar á bænum. Chayanov. Bændur eru að vísu arð- rændir, en það arðrán gerist ekki inni í samfélagi þeirra, heldur kemur utan frá, eins og t.d. þegar kaupmenn setjast að á Akureyri og versla við bændur. Bændur hafa skv. Chayanov ann- að viðhorf til rekstrar en kapi- talístar (ath. þeir voru taldir smá- kapítalistar í Sovétríkjunum á hans tíma). Bændur miða fyrst og fremst við að uppfylla ákveðnar neyslu- þarfir sínar, og hafa engan beinan mælikvarða á það, hversu mikla vinnu þeir leggja í að uppfylla þessar þarfir. Þeir geta því ekki reiknað út eins og kapítalistarnir hvað þeir fái út úr vinnu sinni eða annarra á búinu, og því verður gróðahugtakið, sem kapítalistinn leggur til grundvallar, merkingar- laust fyrir bóndanum. Við aðstæður þar sem kapíta- lískur búskapur færi á höfuðið myndu smábændur og fjöl- skyldur þeirra vinna lengri vinnudag, selja fyrir lægra verð, sætta sig við engan gróða eða framleiðsluafgang, og samt halda áfram búskapnum ár eftir ár.4 Þetta má kalla sjálfsánauð, eða sjálfsarðrán (selvudbytning). Bænd- urnir þurfa ekki að borga laun til að halda rekstri sínum gangandi, í mesta lagi verða þeir að sjá af vinnufólki sínu til annarra starfa, því þeir vinna sjálfir á jörðinni og geta því haldið áfram starfsemi við aðstæður þar sem kapítalistar væru löngu komnir á hausinn. Þessar hugmyndir Chayanovs koma heim og saman við hugmynd- ir Karls Polanyis um hagfræði for- kapitaliskra samfélaga. Hann telur að í slíkum samfélögum sé efnahag- urinn „á kafi” í félagslegum tengslum. Meginmarkmið einstakl- inga í slíkum samfélögum sé að varðveita félagslega stöðu sína, ná ákveðnum félagslegum mark- miðum. Efnisleg gæði séu aðeins tæki til að ná þessum markmiðum, ekki markmið í sjálfu sér. Polanyi hafnar þannig forsendum hinnar klassísku hagfræði og nytsemis- hyggjunnar, varðandi hlutverk efn- islegra gæða, og bendir í staðinn á mikilvægi félagslegra samskipta- forma.5 Snúum okkur aftur að Chayan- ov. Hann skrifaði ekki bara um fjöl- skyldubúskap smábóndans, heldur einnig um hvernig hann gæti varist ásókn kapítalismans, varðveitt sjálfstæða stöðu sína. Hann leit á þróun bandarísks landbúnaðar sem víti til varnaðar. Þar hefðu fjár- málamenn náð undirtökum og bændur væru aðeins verkamenn sem ynnu við framleiðslutæki sem aðrir ættu í raun og veru. Til þess að hindra þetta yrðu bændur að skipu- leggja framleiðslu sína sjálfir, „lóð- rétt”, þ.e. frá upphafi vinnuferlis landbúnaðarafurða til enda. Chayanov leit raunar á þær sam- vinnuhreyfingar sem þegar voru orðnar til, sérstaklega í Danmörku og Englandi, sem fyrirmyndir fyrir rússneska bændur að fara eftir. Stefna hans beið ósigur þegar Stalín velti Búkharin úr sessi og Chayanov var sjálfur drepinn í hreinsununum á 4. áratugnum. 42 SAGNIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.