Sagnir - 01.04.1987, Síða 66

Sagnir - 01.04.1987, Síða 66
Ske Herrens vilje CHRISTIAN 3. 1534-1559 Krýningartákn Kristjáns III. Einkunnarorð konungs „Verði vilji Herrans” hafa líklega ekki síður átt við hann sjálfan en hinn eina og sanna Herra. Sérstaða krúnulénsins Réttarstaða Vestmannaeyja sem krúnuléns varð með öðrum hætti en tíðkaðist annars staðar á íslandi. Tíund var að erlendri fyrirmynd, greidd með hluta framleiðslunnar (tekjuskattur), enda af litlu öðru að taka. Þekktist það hvergi annars staðar á íslandi þar sem tíundin grundvallaðist á skuldlausri eign manna (eignaskattur). Aðstæður og atvinnuhagir eyjaskeggja buðu fremur upp á erlenda fyrirkomu- lagið ef hagsmunir landsdrottins áttu að njóta sín. Á stjórnarskrifstofu dansk- norsku konunganna, kansellíinu, þar sem fjallað var um hjálendur ríkisins var sérstaða Vestmanna- eyjalénsins greinileg á sextándu og sautjándu öld. Fram kom öðru hvoru að valdsmenn sáu ástæðu til að halda íslands- og Eyjalénunum svo aðskildum að svo virtist sem hið síðarnefnda væri vart talið til ís- lands.3 Þarna var einungis um einkahagsmuni konungs að ræða, en hætt var við að arðurinn skilaði sér ekki til „réttra” aðila, léns- herranna, fremur en ágóði af ís- landsversluninni almennt. Ný verslunarstefna Konungi finnst tími til kominn að þegnar ríkisins læri sigling- ar til íslands og njóti þess arðs sem útlendingar hirða nú.4 Það fer ekki milli mála hvað býr að baki þessum hugmyndum Kristjáns III (1534-1599) sem fram komu árið 1542, varðandi „verslunarólagið”. En hverjir voru það sem hirtu hagn- aðinn af íslandsversluninni? Á 15. öld hafði íslandsverslunin lengst- um verið í höndum Englendinga og síðar Þjóðverja gegn leyfisbréfum og greiðslu tolla og sekkjagjalda. Englendingum tókst þegar á 15. öld að reka umtalsverða útgerð og verslun í Eyjum. Höfðu þeir komið sér þar vel fyrir og var athafnalíf mikið og velmegun í konungsléninu meðan útgerð þeirra og verslun stóð sem hæst.5 Ætla má að með ákvæðum Píningsdóms frá árinu 1490,6 þar sem veturseta og útgerð- arrekstur útlendinga í landinu var harðlega bannað, yrði fastar tekið á þessum málum. En Danir höfðu ein- faldlega ekki haft bolmagn til sam- keppni við verslunarveldi Þjóð- verja og siglingaveldi Englend- inga.7 Samkvæmt Píningsdómi lágu þungar sektir við því að landsmenn þjónustuðu útlendinga, en enskir fóru kringum það með því að láta sem Vestmannaeyingar ættu báta þeirra sjálfir. Sama hátt höfðu Hamborgarar á útgerðarrekstri sínum á Suðurnesjum. ítrekanir á banninu voru þó margar og varaði konungur til dæmis alvarlega við brotum í árslok 1542, og segir vet- ursetuna hina „skaðvænlegustu” fyrir landsmenn.8 Ekki var hann einn um það álit því innlendri valda- stétt var meinilla við aukinn útgerð- arrekstur og þátttöku íslendinga sjálfra í einhverju gróðabralli þar sem hætta var á að það raskaði stöðu hennar. Mótmælt var til dæmis á Alþingi árið 1576 þegar Guðbrandur Hólabiskup vildi gera út kaupskip. Verslun væri betur komin í höndum útlendinga eins og ávallt áður.9 Þessi íhaldssemi land- ans varð óhjákvæmilega til þess að áhugi og tækifæri hinna erlendu kaupmanna á uppbyggingu í land- inu var enginn. Við siðaskiptin styrktust áhrif konungsvaldsins á íslandi. Hefur konungur því talið tímabært að láta til skarar skríða og framfylgja verslunarstefnu sinni og búa betur að hinum dönsku þegnum í þeim leik. Kaupmannahafnarhöll á seinni hluta sextándu aldar, eftir að Kristján III hafði látið fara fram gagngerar breytingar og gera nýja viðbyggingu upp á fimm hæðir. Sést hún t.h. á myndinni. Hætt er við að „torfkofahyskið” hefði rekið upp stór augu við þessa sýn, en ólíklegt er að það hafi haft hugmynd um í hvað afrakstur vinnu þess fór. 64 SAGNIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.