Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 3
FRA UTGEFANDA:
Orðsending til lesenda
/ fyrsta tölublaði NÝS HELGAFELLS
var á fremstu síðu alllöng greinargerÖ frá
útgefanda um ritið yfirleitt, stefnu f)ess,
efni og tilhögun um kynningu. Þar var
meðal annars sagt frá því, að ritið mundi
verða sent ýmsu fólki til f>ess að kynna
f>að. Árangurinn hefir orðið sá, að fjöldi
manna hefir að fyrra bragði óskað f>ess að
fá ritið sent áfram, en frá óðrum hefir það
komið til baka. Enn eru fjölmargir, sem
hafa ekki látið til sín heyra, enda ekki bein-
línis ástæða til þess, fyrir f>á, sem œtla sér
að verða kaupendur, og heldur engin krafa
um það gerð til hinna, sem ekki kœra sig
um það, þó að til þess hafi verið mœlzt, að
ritið yrði þá endursent útgefanda. Auk
þeirra, sem óskað hafa eftir að fá ritið
áfram, er annað heftið nú einnig sent til
allra, sem ekkert hafa látið til sín heyra.
Skal það þó tekið mjög skýrt fram, að hér
er aðeins um frekari kynningu að rœða, en
alls ekki tilraun til þess að þvinga þv't inn
a neinn. Þó mun samhliða þessu hefti verða
send til þeirra allra póstkrafa fyrir þriðja
hluta ágjaldsins, kr. 40,00, og verða nú
þeir sem greiða kröfuna skoðaðir sem áskrif-
endur fyrst um sinn, en á ný mœlzt til
þess við aðra, að þeir endursendi útgefanda
bœði heftin, og leysa þeir þá að sjálfsögðu
ekki inn krófuna. Ýmsum kann að finnast
þetta óviðfelldin aðferð til þess að kynna
tímarit, og eru þeir hinir sömu beðnir vel-
virðingar á ónæðinu. Rétt er að benda þeim
a, sem fengið hafa ritin í hendur, að ætlazt
er til þess, að þeir skeri hiklaust upp úr
þeim og skili þeim þannig, ef þeir gerast
ekki áskrifendur. Endursendingarkostnað
utan af landi greiðir útgefandi.
NÝTT HELGAFELL
Veghúsastíg 5
Simi 6837.