Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 25

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 25
UTANRlKISSTEFNA ÍSLENDINGA 71 sambúðar við Bretland. Við gætum óreiðan- lega haft ,,góða sambúð'' við Breta, ef við létum af því að færa út friðunarlínuna og segðum í þess stað, að þeir mættu fiska á sömu svæðum hér við land og áður. En við íslendingar teljum það meiri ,,lífsnauðsyn" að standa á þeim helga rétti þjóðarinnar, en að halda ,,góðri sambúð" við þessa vina- þjóð okkar. Þegar við endurheimtum sjálfstæði okkar, gerðist það þannig, að við töldum það meira virði að öðlast sjálfstæði á kostnað „góðrar sambúðar'' við Dani um skeið, en sú „lífs- nauðsyn" að hafa við þá „góða sambúð" ósjálfstæðir og í niðurlægingu. Af þessum örfáu dæmum — af svo að segja óteljandi — má sjá, að „góð sambúð" milli þjóða verður að byggjast á gagnkvæmri tillitssemi og virðingu fyrir sjálfstæði, samn- ingum og rétti. Ef svo er ekki, getur svo farið, að „góð sambúð'' smáþjóðar við stórþjóð verði að niðurlægingu, þar sem önnur þjóðin setur skilyrðin einhliða fyrir „góðri sambúð", en hin hlýðir. Þá er „góð sambúð" ekki leng- ur „lífsnauðsyn", heldur dauði. Sú góða sambúð, sem við Islendingar vilj- um framar öilu stuðla að og eiga við aðrar þjóðir, teljum við að eigi að vera reist á virðingu okkar fyrir rétti þeirra þjóða, sem við eigum samskipti við, og að við höldum loforð okkar og samninga við þær. En jafn- framt virði þær sjálfsákvörðunarrétt okkar og þá samninga, sem þær hafa við okkur gert. „Mörkin í samvinnu og skuldbindingum við aðrar þjóðir". Ritstjórnin spyr ennfremur um það, hvort samstarf og þátttaka í alþjóðasamtökum hljóti ekki „að hafa í för með sér nokkurt afsal sjálfsákvörðunarréttar þjóðarinnar". Hún telur, að vandinn sé að „draga mörk í samvinnu og skuldbindingum við aðrar þjóð- ir". Þetta tel ég rétt athugað, enda hafa ís- lenzkir stjómmálamenn verið vel á verði um þetta atriði. Áður en við gengum í Atlantshafsbanda- lagið 1949, sendi Alþingi þrjá ráðherra til Bandaríkjanna til þess að tryggja óvéfengj- anlega að „draga mörk í samvinnu og skuld- bindingum", ef við gerðumst þátttakendur í Atlantshafsbandalaginu. Þessir þrír íslenzku ráðherrar áttu þrjá við- ræðufundi vestra, meðal annars við utanrík- isráðherra Bandaríkjanna. Að loknum þess- um fundum var lýst yfir, að við Islendingar mundum því aðeins ganga í Atlantshafs- bandalagið, að gengið væri að eftirfarandi ófrávíkjanlegum skilyrðum: Að við hefðum sjálfir engan her. Að við réðum því algerlega sjálfir, hvort við leyfðum erlendum her að dveljast í land- inu. Að við mundum aldrei leyfa her að dvelj- ast í landinu á friðartímum. Samkvæmt skýrslu, er ráðherramir gáfu Alþingi og ríkisstjóminni, lýsti utanríkisráð- herra Bandaríkjanna yfir því, að hann fyrir hönd bandalagsþjóðanna gengi að öllum þessum skilyrðum. — Og á þeim grundvelli gerði Alþingi ályktun sína um þátttöku Is- lands í bandalaginu. Þegar við Islendingar gerðum, árið 1951, samning um, að her kæmi hingað frá Banda- ríkjunum vegna ótta við yfirvofandi árás og heimsstyrjöld, var uppsagnarfresturinn sam- kvæmt 7. gr. settur svo stuttur sem raun ber vitni, til þess að við gætum verið vissir um að geta tryggt okkur, að herinn færi héðan með stuttum fyrirvara, ef friðvænlegra yrði í heiminum. Var þetta í samræmi við þau skilyrði, sem áður greinir og við settum, er vð gengum í Atlantshafsbandalagið. Það virðist því ekkert á það skorta af hálfu Is- lendinga „að draga mörkin". Það atriði er ljóst. „Mörkin" eru þessi: Við stöndum með nábúum okkar og við munum leyfa þeim að hafa hér her í styrjöld, eða vegna yfirvofandi árásar — en ekki á friðartímum. En það vill henda, að þjóðir, sem við er samið, vilja fara yfir „mörkin", þótt skýr séu. Af þessu stafar okkur ekki veruleg hætta, nema það ólán hendi, að íslenzkir menn taki upp baráttu með erlendum öflum móti rétti Islendinga og málstað.

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.