Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 29

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 29
ARTHUR KOESTLER: Um pólitíska sálsýki — Sjúkdómsgreining — ( í flestum nútímakenningum um pólitíska hegðun manna felst undarleg mótsögn. Það er alkunna, að múgi manns er gjamt að rasa um ráð fram (múgæsing, múgsefjun, eins og það er kallað). Allir vita líka, hvemig einstaklingurinn varpar stundum skynsem- inni fyrr borð í kynferðismálum og í sam- skiptum sínum við vandafólk eða .yfirmenn og undirmenn. En þótt vér játum, að múgurinn hagi sér eins og sálsjúklingur í stjómmálum og geðflækjui' manna komi mjög í ljós í einkalífi þeirra, þá höldum vér samt dauða- haldi í þá furðulegu ímyndun, að venjulegur borgari láti skynsemina ráða í stjórnmálum, þegar hann er ekki undir múgáhrifum. 1 lýðræðisríkjum mótar þessi trú allt stjóm- arfarið, og þessi staðlausa kreddutrú veldur mestu um það, að lýðræðisríkin eiga einlægt í vök að verjast fyrir einræðisríkjum, og að sú viðureign er engu síður andleg en ver- aldleg; það allt bendir til þess, að vér tuttug- ustu aldar menn séum pólitískir sálsjúkling- ar. Þetta hefm' einræðissinnum alltaf verið ljóst. Þeir em herskarar dauðans í sókn gegn menningu vorri. Sjúkleiki eflir vald þeirra; þess vegna eru þeir slyngir að greina sjúkdóma. Ef vér eigum að komast hjá tortím- ingu, þá verðum vér að vera þeim jafnslyngir í sjúkdómsgreiningu. En enginn greinir sjúk- dóm rétt, sem gerir ráð fyrir, að ekkert sé að. Síðan upplýsingartímabilið hófst, hafa fransk- ir, þýzkir og enskir heimspekingar hver á fæt- ur öðrum innrætt mönnum trú á skynsemd og pólitíska heilbrigði einstaklingsins. Þar hafa lagt til málanna alfræðingarnir frönsku, marxistar, fylgismenn þeirra Benthams og Owens og framfaramenn af öllum flokkum. Frá Freud og lærisveinum hans hefur að vísu fallið skuggi á þessa heiðríku trú á rökeðli mannsins: vér höfum látið oss skiljast, að kynhvöt vor er heft og afvegaleidd. Nú er mál til komið, að vér gerum oss ljóst, að pólitískar ástríður vorar eru ekki síður marg- flæktar, bældar og rangsnúnar, nema fremur sé. Jámtjald hugans í fljótu bragði virðast bollaleggingar um „pólitískar ástríður, dulvitund og bældar minningar'', einungis vera hugtaka- og orða- leikur menntamanna. En sérhver hlutlæg at- hugun á nútíma þjóðfélagshögum mun leiða í ljós, að geðflækjur pólitískra ástríðna eru eins djúpstæðar og engu síður raunveruleg- t-----------------------------------^ Arthur Koestler er Ungverji, sem gerzt heíur enskur þegn og rithöfundur á enska tungu. Um skeið var hann kommúnisti og starfaSi í þjónustu flokks þeirra í Þýzkalandi, á Spáni og víðar. Koestler er nafntogaður fyrir skilgreiningar sínar á pólitísk- um vandamálum nútímans. V___________________________________J

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.