Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 13

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 13
JARPUR 59 líka oft upphátt, þegar ég gekk til hans og klappaði honum, þar sem hann stóð og hengdi niður höfuðið í haganum eða heima við hesthúskofann sinn. En þegar ég tal- aði við hann upphátt, nefndi ég aldrei dauðann, því að mig grunaði, að Jarpur væri ékki alveg skynlaus skepna. Þetta voru ógleymanlega dapurlegir dag- ar og dapurlegar nætur. Ég hafði ekki gam- an af neinu. Það var blýþungt myrkur inn- an í mér öllum. Ef Jarpur deyr, þá er allt búið. Svona seiglaðist tíminn áfram milli veikrar vonar og mikils ótta/þangað til um páska'helgarnar. Á skírdag eða föstudaginn langa var loft bláheiðríkt og glaðasólskin. Niðri á láglendinu var ofurlítill snjór, en uppi í brekkunum var orðið autt af sólbráð. Hrossin af bæjunum höfðu leitað upp í brekkurnar og stóðu á beit neðan til í Dýj- unum, og aumingja Jarpur hafði rölt þang- að í humátt á eftir þeim. Það þynnti ofur- lítið á myrkrinu innan í mér. Það er þó að- eins batamerki, að hann skyldi fá sig til að keifa upp í brekkur. Ég stóð úti á eystra hlaði og horfði, hvernig Jarpur hagaði sér. Hann eigraði til og frá innan um hrossin og hnusaði nokkrum sinnum úr jörðu, en virtist ekki snerta við strái. Það þyrmdi aftur yfir mig. Ég ráfaði inn í baðstofu og hugsaði: Kannski verður hann farinn að bíta, þegar ég kem út aftur. Eftir dálitla stund stóð ég aftur úti á hlaði og horfði upp í brekkurnar. Jarpur 'hélt áfram að reika innan um hrossin og var hættur að hnusa úr jörð. Aldrei hafði ég séð eins átakan- lega, að hann hafði ekkert viðþol fyrir kvöl- um. Það þyrmdi ennþá meira yfir mig. En ekki gat ég séð, að hrossin kenndu neitt í brjósti um þennan sárþjáða félagsbróður. Það var farið að halla degi, sól sennilega komin vestur undir nónstað. Það var ein- kennilega fagurt sólskin, eins og sólskin alltaf eru, þegar einhver er að skilja við heiminn. Ég var ýmist inni í baðstofu eða stóð úti á hlaði og horfði á Jarp. Loksins sé ég, að hann tekur sig úr hrossunum og röltir afarhægt niður brekkurnar. En hann stefnir ekki í suður, ekki heim að Hala eða heim að hesthúsinu sínu. Hann stefn- ir í suðaustur og skjögrar fet fyrir fet niður hjá Lambhaga og svo fyrir austan Háubala og inn í Glompu, sýnilega mjög máttfar- ínn, og þegar hann kemur upp úr Glompu, beygir hann meira til austurs yfir mjótt barð og hverfur augum mínum niður í lág- ina vestan við Gerðisbæinn. Af hverju fer hann í þessa átt? Hvaða erindi á hann nið- ur að Gerði? Máski verður honum farið að batna, þegar hann kemur upp úr láginni. Það gerist stundum meira, þegar maður sér ekki en þegar maður horfir á. Ég mæni eft- ir, að hann komi upp úr láginni. Það líður nökkur stund, en hann kemur ekki. Nú sé eg fólk frá Gerði þjóta vestur í lágina. Hvað hefur nú komið fyrir? Hefur Jarpur oltið um þúfu í láginni og liggur þar afvelta og ætlar fólkið að fara að reisa hann við? Ég tek til fótanna niður eftir. Honum getur samt verið farið að batna. Þegar ég kem fram á vesturbrúnina á láginni, blasir hún við mér öll, og ég sé hvar Jarpur kúr- ir á hliðinni undir suðvesturbarmi henn- ar, hreyfingarlaus, með höfuðið á þúfu á móti austri, og yfir honum stóð lítill hópur barna og fullorðinna, og allir litu út, eins og þeir væru ráðalausir. Ég fann undir eins á mér, að við þessari afveltu yrði ekkert ráð fundið. Eftir brot úr mínútu stóð ég líka yfir Jarpi. Það þurfti ekkert að segja mér,

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.