Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 20

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 20
66 NÝTT HELGAFELL eldhólfum. Strompur er á þaki, en gluggi enginn á eldhúsinu. Hæ3 undir mæni er 2,10 metrar. Mál þessi vekja hugmynd um stærð bæjarins, því að önnur hús eru eftir þessu. Innar af eldhúsinu er fjós. Kýrnar hafa gengið um sömu útidyr og mannfólkið, inn um ranghalann, gegnum eldhúsið endilangt og komizt þannig á bása sína. Á sumrin munu þær víst hafa verið hýstar í öðrum húsum, en hafðar í þessu fjósi eftir að vetur var setztur að, svo að ekki hafa þær verið daglegir gestir í eldhúsi, en mykju hefur orðið að bera frá fjósi gegnum eldhús allan veturinn. Annar ranghali þröngur gengur úr eld- húsgöngunum til hlöðu, og er sambandið milli fjóss og hlöðu með afbrigðum óhagan- legt, þar sem krækt er langan veg og farið með heyið gegnum eldhúsið. Beint inn af bæjardyrum er baðstofa og tröppur tvær upp að ganga. Baðstofan er talsvert úr lagi færð nú, en var til skamms tíma þiljuð sundur í tvennt í miðju. I fremri enda var stía fremst, sem í voru kindur um vetur, en við skilrúmið stóð vefstóll. Irman við skilrúmið var íveruhús fólksins, rúm þrjú við vegg og gafl og borðkríli undir baðstofu- glugga. Loks er svo að telja yztu húsin í fremstu röð, skemmu og hesthús, með sérstökum dyrum og ekki innangengt í þau úr öðrum húsum. Slíkur er síðasti bærinn á Þorljótsstöðum í stórum dráttum. Sagt er, að hann sé byggð- ur af Steini bónda Ormssyni, sem fluttist að Þorljótsstöðum 1798 og bjó þar fram yfir 1830. Er bærinn þá rösklega 100 ára gamall eða ef til vill allt að því 150 ára. Einhverjar smábreytingar munu hafa verið á honum gerðar, en eftir sem áður er hann ákjósan- legur fulltrúi fyrir íslenzka miðlungsbæi frá síðasta skeiði torfbæjanna. Slíkur bær er hin sígilda og sérstæða umferð um þúsund ára sögu íslenzkrar alþýðu. Hann er fullur af minningum, frá fomöld, frá miðöld, frá 19. öld. Hvert hús, hver krókur og kimi, hver biti og sperra, allt eru þetta skilaboð fyrri manna til okkar, fyrstu íslenzku kynslóðar- innar, sem ekki er háð þessum fátæklega veraldararfi, sem feðumir seldu niðjum sín- um í hendur mann fram af manni í tíu aldir. Hve undursamlegt íhugunarefni er það ekki hinni ungu húsfreyju, sem eldai' eldlaust í hvítu eldhúsi og hefur varla nokkurn tíma á ævi sinni séð eld nema í pípu mannsins síns, að amma hennar og formæður í alla liði skuli hafa bograð við þessar hlóðir á Þorljótsstöðum og aðrar slíkar, í þessu sót- drifna og jarðgróna torfhýsi, þar sem bless- aðar kýrnar gengu út og inn. Svo undra- stuttur tími skilur þessar konur, kannske ekki nema 50 ár, en milli þeirra stendur það sem meira er, aldahvörfin, er forn atvinnumenn- ing, járnaldarmenningin, leið undir lok á Is- landi. Bærinn á Þorljótsstöðum er minnisvarði þessara aldahvarfa. Hann táknar endalok mannabyggðar á staðnum, eins og kumlið táknar upphaf hennar. Eí við rennum huga yfir tímann frá kumlinu til bæjarins, sjáum við fyrir okkur langa röð af íslenzkum dala- bændum, óþekktum mönnum, sem ekki fara sögur af. Það eru ábúenaurnir á Þorljóts- stöðum, mann fram af manni. Ef leitað væri í skjölum, mundi líklega takast að koma nafni á einn og einn, en varla miklu meira. Rétt eftir 1700, þegar manntalið var tekið, bjó þar til dæmis Ólafur bóndi Bessason og bústýra hans Sigríður Þorsteinsdóttir og ekki fólk annað. Eftir sem áður eru bændur á Þorljótsstöðum gleymdir fulltrúar íslenzkrar alþýðu, sem erjaði hér land kynslóð fram af kynslóð. Ef við nú jafnframt lítum yfir Þorljótsstaða- land eins og það er í dag, verðum við þess áskynja, að þar er ekkert að sjá, annað en kuml landnámsmannsins og niðumíddan bæ landflóttamannsins, upphaí og endi á þessu þúsund ára langa striti hinna nafnlausu bænda. Það er eins og hér hafi aldrei gerzt neitt, hinar fjölmörgu kynslóðir hafa horfið sporlaust, og verk þetta hefur ekkert orðið annað en það að halda við neista kyn- stofnsins og skila honum með lífsmarki í

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.