Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Qupperneq 32

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Qupperneq 32
78 NÝTT HELGAFELL óminni var vatn á millu þeirra. Afstaða þeirra á þessum árum er almenningi gleymd vegna eyðu í minni þjóðarinnar. Sálgerð Frakka núorðið er reist á rang- færslu og sjálfsblekkingu. Þjóðsagan um hina ósigruðu og sigursælu þjóð festi fyrst rætur með þegjandi samkomulagi, en varð síðan brátt að trúaratriði. Margur fyrrverandi samstarfsmaður Þjóðverja ber nú ekki ein- ungis heiðursmerki andspyrnuhreyfingarinn- ar í hnappagatinu, heldur trúir því í ein- lægni, að hann hafi til þess unnið. Honum finnst undir niðri, að hann sé ein af hetjum andspyrnuhreyfingarinnar, vegna þess að hann dáir þær. Hér endurtekur sig sagan um Goethe vorn, Jóhönnu vora frá Orleans, hetjuþjóð vora o. s. frv. Hér eru að verki sömu öfl og með þýzku þjóðinni', en með þveröfugum árangri. Hjá Þjóðverjum leiddi samruni einstaklingsins við þjóðarheildina til sameiginlegrar sektartil- finningar, sem bæla varð niður í djúp dul- vitundarinnar. Hjá Frökkum leiðir hann til sameiginlegrar frægðar, sem gefur pólitísk- um ástríðum byr undir báða vængi. En hinar bældu minningar hafa látlaus og skaðvæn- leg áhrif á siðferðisþrek þjóðarinnar. Skrök- sögu fortíðarinnar verður aðeins haldið lif- andi með því að flýja veruleika samtíðar- innar. Samkvæmt þjóðsögunni skuldar Frakk- land engum neitt. Ef Frakklandi er veitt Marshall-hjálp, er það gert til framdráttar einhverjum leyniáformum í Wall Street. Ef vopn eru gefin og her sendur, er það til stuðnings heimsveldisstefnu Bandaríkianna. Hinar einu styrjaldarminningar Frakka um Bandaríkjamenn, sem haldizt hafa skýrar og óbrjálaðar, eru þær, að sprengjuflugvélar þeirra misstu oft marks, eyðilögðu mannvirki og urðu frönskum borgurum að fjörtjóni, enn fremur að bandarískir hermenn drukku sig oft fulla og náðu hylli franskra kvenna með sígarettugjöfum. Ekkert amerískt frelsunar- starf framar! Látið oss afskiptalausa, vér vilj- um fá að vera í friði! Vér þörfnumst ekki ölmusugjafa yðar og viljum hvorki kóka- kólaflöskur né atómsprengjur! Ef þér látið oss afskiptalausa, munu Piússar einnig sjá oss í friði. Alls konar tilbrigði þessa stefs má lesa á hverjum degi í frönskum blöðum, sem túlka þó margvíslegar stjórnmálaskoðanir. Hið eina, sem aldrei er minnzt á, er hin hörmu- lega en mikilvæga staðreynd, að frelsi og sjálfstæði Frakklands er komið undir ægi- mætti bandarískra kjarnorkuvopna. Ef menn gerðu sér þetta ljóst, myndi allur þessi tál- heimur hrynja. Þá yrði óttinn einn eftir — óbærileg niðurbæld skelfing manna, sem fyndu, að þeir stæðu raunverulega varnar- lausir gegn ógnarvaldi Rússa. Þess vegna verður að halda þessum blekk- ingarleik áfram og flýja veruleikann, hvað sem það kostar. Hér er hvorki um vísvitandi hræsni né vanþakklæti að ræða, og þessi dómur felur því ekki í sér neina lítilsvirðingu á skapgerð Frakka. Sérhver þjóð, sem hefur orðið að þola þrjár innrásir á tæpum þrem- ur aldarfjórðungum, og misst hefur á vígvell- inum að minnsta kosti einn karlmann í hverri fjölskyldu, myndi þjást af sömu teg- und sálsýki. Flótti frá veruleikanum Flótti frá veruleikanum er núorðið ein- kenni Evrópumanna, en þó hefur þessi löst- ur fylgt Bretum dyggilegast um langt skeið. Þeir virðast hafa öðlazt ónæmi sitt fyrir múg- sefjun með því að brynja sig gegn veruleik- anum. Þennan galla kunna þeir að dylja af mikilli íþrótt með því að láta heimskupör sín sýnasl geðfellda ráðsnilli. Þegar loftárásir Þjóðverja á Lundúnir stóðu sem hæst, fór P. E. N. klúbburinn þess á leit við Louis Golding, að hann gerði í er- indi samanburð á brezkri og bandarískri skáldsagnalist. Golding hafði rétt lokið ræðu sinni, þegar merki um loftárás var geiið, en umræðunum var haldið áfram, eins og ekk- ert hefði í skorizt. Annar eða þriðji ræðu- maður var skorpinn, lítill, góðlátlegur ná- ungi, sem hafði að ég held ritað ævisögu lítt kunns náttúruskoðara á 17. öld. Hann

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.