Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 27

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 27
UTANRÍKISSTEFNA ÍSLENDINGA 73 ekki gert ráð íyrir erlendum her í landinu á friðartímum. Árið 1951 var óstandið í heim- inum orðið svo uggvænlegt, að Bandaríkin gerðu við okkur hervemdarsamning að okk- ar eigin ósk. I þessum samningi er ekki gert ráð fyrir eilífri hersetu á íslandi. Ef ástandið í alþjóðamálum batnar svo, að hervemdar- innar sé ekki lengur þörf, getum við sagt samningnum upp. Og það emm við íslend- ingar, sem leggjum úrslitadóminn á það, hvort herinn skuli fara eða ekki. Um þetta er enginn ágreiningur. En við höfum sjálfir skrifað undir samning, og sá samningur hefur verið samþykktur á Al- þingi Islendinga, þar sem reglur eru settar um uppsögn samningsins. Ákvæðið um sex mánaða athugun málsins í NATO er ekki sett af handahófi. Það er ekki heldur sett til þess að vera Islendingum fjötur um fót. Þvert á móti. Þetta ákvæði er sett til gagnkvæms öryggis, og það tryggir okkur fullkomna rannsókn færustu manna á öllum málsatvikum, öllu sem mælir með og móti uppsögn herverndarsamningsins, svo að við getum síðan reist dóm okkar á rök- um, þegar við ákveðum, hvort samningurinn skuli felldur úr gildi eða ei. Það nægir ekki að hafa frómar óskir um það, hvemig ástand alþjóðamála ætti að vera, og marka samkvæmt því fasta og ófrávíkjanlega stefnu, sem ekki má breyta, hve sterk rök sem fram eru borin gegn henni. Slík blinda aflar okkur ekki virðingar, held- ur í bezta falli vorkunnsemi og auðmýkjandi velvildar þeirra, sem meiri þroska hafa á þessu sviði. Það er mikið slys, sem komið hefir fyrir íslendinga með hinni flasfengnu samþykkt meiri hluta Alþingis um varnarmálin. Öryggi okkar sjálfra og skyldan gagnvart öðrum hefir hvorttveggja verið gert að leiksoppi. Það verður erfitt að afmá til fulls þann blett, sem þama hefir verið settur á þjóðar- sóma Islendinga, en Sjálfstæðisflokkurinn mun vinna að því verki, að glappaskotið megi gleymast sem fyrst. Valdimar Jóhannsson: Annar landsfundur Þjóðvamarflokks Is- lands lýsti þessari stefnu í utanríkismálum: 1. Hervemdarsamnngurinn við Bandariki Norður-Ameríku frá 1951 verði þegar í stað sagt upp og gengið eftir því, að hinn erlendi her hverfi úr landinu, jafn- skjótt sem uppsagnarákvæði leyfa, en þangað til verði herliðið algerlega ein- angrað í herstöðvum sínum. 2. Islendingar lýsi á ný yfir hlutleysi sínu í hernaðarátökum þjóða á milli og hafni þátttöku í hvers konar hemaðarbanda- lögum, enda stofni þeir ekki innlendan her. 3. Islendingar ástundi vinsamleg skipti við allar erlendar þjóðir, beiti áhrifum sín- um í samtökum þjóðanna til eflingar friði og alþjóðlegri réttarvemd hlutlausra smáþjóða og styðji með atkvæði sínu ný- lenduþjóðir og aðrar undirokaðar þjóðir, hvar sem er í heiminum, í sjálfstæðis- og frelsisbaráttu þeirra. 4. Islendingar taki þátt í virku alþjóðlegu samstarfi, eftir því sem samrýmist hags- munum og fjárhagslegri getu þjóðarinn- ar, en forðist allt prjál og tildur, sem því vill verða samfara. Telur flokkurinn unnt og sjálfsagt að skera stórlega niður kostnað við utanríkisþjónustu landsins, m. a. með því að fækka sendiherraemb- ættum og sneiða hjá málamyndaþátt- töku í alþjóðlegum ráðstefnum, sem Is- lendinga varða litlu. Stundum heyrist vitnað til afstöðu annarra Norðurlandaþjóða, og jafnvel Vestur-Evrópu-

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.