Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 46

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 46
92 NÝTT HELGAFELL ©f fólki er boðið upp á eitthvað annað en brandara. Af því, sem gerzt hefur á sviðinu ber hæst sýningar Þjóðleikhússins á Jónsmessudraumi Shakespeares. Leikstjórn Mr. Hudd var með ágætum, en hefði orðið enn betri, ef hann hefði getað tekið til meðferðar framsögn leik- aranna, sem í mörgum tilfellum var mjög ábótavant. Leitt var að geta ekki lesið þýð- ingu Helga Hálfdánarsonar strax að sýn- ingu lokinni; vonandi verður hún ekki látin liggja of lengi í handriti, án þess að vera gefin út. Þjóðleikhúsið fékk mikinn hvalreka á fjör- ur sínar í vetur. I tilefni þess, að Halldóri Kiljan Laxness voru veitt Nóbelsverðlaunin, tók það upp aftur sýningar á Islandsklukk- unni, og virðist hún ætla að ganga enda- laust. Endurtekur sig þar sagan frá því í fyrra, þegar höfð var hátíðasýning á Gullna hliðinu í tilefni af sextugsafmæli Davíðs Stefánssonar, og endirinn varð, að sýningar urðu yfir tuttugu áður en lauk. Það er því auðséð, að ef íslenzk leikrit ná á annað borð almannahylli, eru þau traustur homsteinn undir rekstri leikhúsanna. Ekki virðist þó Þjóðleikhúsið vera þessarar skoðunar; þar hefur ekkert nýtt íslenzkt leikrit verið sýnt í vetur. Sýningar á tveim nýjum leikritum hafa þó yerið boðaðar, en sýningum á báðum frestað án þess skýring hafi verið gefin. Nýtt íslenzkt leikrit hefur þó sézt á vetrin- um, því Leikfélag Reykjavíkur sýndi Kjam- orku og kvenhylli, nýjan gamanleik eftir Agnar Þórðarson, og hefur þegar haft á hon- um yfir 50 sýningar. Sannar þetta enn það sem að framan er sagt um íslenzk leikrit. Hjá L. R. var líka unninn mesti leik- sigur ársins, en það gerði Helga Bachmann í Systur Maríu. Ég hafði aldrei séð Helgu leika áður, en mér hefði aldrei dottið í hug, að þetta væri hennar fyrsta stóra hlutverk, ef mér hefði ekki verið sagt það, svo tilþrifa- ríkur og ömggur var leikur hennar. Systir María var að mörgu leyti ágæt sýning. Leikstjóri var Gísli Halldórsson, lék hann einn- ig æði stórt hlutverk. Kom það mjög greini- lega fram, hve hættulegt það getur verið, ef sami maður er bæði leikstjóri og leikur stórt hlutverk. Stjóm Gísla var sem sagt mjög góð og leikur hans að mörgu leyti líka, en leikurinn var bara alltof sterkur og bar sýn- inguna algjörlega ofurliði. En Gísli er ungur maður, og lærir vafalaust af reynslunni. Með reynsluleysi er ekki hægt að afsaka Indriða Waage, en í Vetrarferð lék hann aðal- hlutverkið jafnframt því sem hann annaðist leikstjórn. Þar urðu afleiðingamar þeim mun sárari sem Vetrarferð er betra leikrit en Systir María. Ég held, að Indriði hefði náð enn meiiu út úr sínu hlutverki, ef hann hefði verið heill og óskiptur í leiknum, en hitt var þó ekki síður, að meðleikarar hans, og þá sérstaklega Rúrik Haraldsson og Katrín Thors, hefðu notið sín betur undir dá- lítið ákveðnari leikstjórn. Síðasta viðfangsefni Þjóðleikhússins á leikórrinu var Djúpið blátt eftir Terence Rattigan. Það má sjálfsagt deila endalaust um leikritaval, en ég vildi, að ég gæti látið mér detta í hug, þó ekki væri nema eina góða ástæðu til viðbótar frægð höfundarins, fyrir því að þetta leikrit var tekið til sýning- ar. Þar koma fram manngerðir, sjónarmið og viðhorf, sem eru svo ólík því sem hér gerist, að það hlýtur að fara fyrir ofan garð og neðan, ekki aðeins hjá leikhúsgestum, heldur jafnvel hjá leikurunum sjálfum. Það sem mesta eftirtekt hefur vakið í sambandi við Djúpið blátt, er frammistaða Helgu Val- týsdóttur í aðalhlutverkinu, og hefur hún hlotið mikið lof, kcmnske óhóflega mikið. En það er ekki heiglum hent að leika hlut- verk eins og Hester Collyer. Vissulega sýndi Helga bæði tilþrif og djúpar tilfinningar, og þótt hún ef til vill klifi ekki sinn leiklistar Everest, þá komst hún það nálægt tindinum, að ef hún notfærir sér þá reynslu, sem hún fékk í þessum leiðangri, getur hún ótrauð gert næstu atrennu. Ég get ekki skilið við Djúpið blátt, án þess að ljúka lofsorði á þau Regínu Þórðardóttur og Jón Aðils fyrir af- bragðs frammistöðu í smærri hlutverkum. Ég hefði haft gaman aí að minnast hér

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.