Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 6

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 6
52 NÝTT HELGAFELL ætti að vera hverjum lýðírjálsum manni helgur vottur um stuðning hans við þann málstað, sem hann veit réttastan. Það er þó ekki nema að nokkru leyti á valdi kjósandans að tryggja, að rödd hans hafi þau áhrif á úrslit kosninganna, sem rétt- ust væri. Slfkt er ekki síður komið undir því stjórnmála- og kosninga- skipulagi, sem hann á við að búa, en það ræður því, um hvað hann á að velja og hversu þungt atkvæði hans verður á metaskálunum. Kjördæmaskipunin ræður ekki öllu um þetta efni, heldur einnig flokka- skiptingin. Ekki er þörf að fjölyrða um þá réttarskerðingu, sem flokks- einræði fylgir. Hitt getur líka orðið skaðlegt, þótt á annan veg sé, að flokkar séu svo margir, að enginn þeirri hafi færi á að ná meirihluta á þingi. En þvílíkt hefur ástandið verið um langt skeið á íslandi. FLESTAR RÍKISSTJÓRNIR hafa um langan aldur verið samsteypu- stjórnir, sem ósammála hafa verið um mörg grundvallaratriði í þjóð- málum. Þegar líður að kosningum, riðlast þær nær undantekningarlaust, og flokkarnir ganga fram fyrir kjós- endur hvítþvegnir af syndum og misgerðum ríkisstjórnarinnar, því að þær eru að sjálfsögðu ætíð sam- starfsflokknum að kenna. í rauninni fá því kjósendur ekki tækifæri til að leggja dóm á stefnu ríkisstjórnarinn- ar, því að enginn flokkur getur eða vill koma algerlega fram fyrir henn- ar hönd. Ekki geta kjósendur heldur haft nema óbein áhrif á það, hvaða ríkis- stjórn tekur við að kosningum lokn- um. Þegar enginn flokkur hefur von um hreinan meirihluta, geta kjósend- ur ekki gert sér grein fyrir því, hvaða hrossakaup um stjórnarmyndun muni verða gerð í umboði þeirra. Og um þetta er ekki við stjórmála- mennina að sakast, því að þeir geta sjálfir enga endanlega skoðun gert sér um þetta, fyrr en séð er, hver styrkleikahlutföllinn verða milli flokka á þingi. Ein afleiðing þessa ástands hefur orðið sú, að höfuðmál stjórnmálanna hafa haft minna að segja um úrslit kosninga með hverju ári. Menn hafa vitað, að ekki yrði aðstaða til að framkvæma til hlítar þær stefnu- skrár, sem fram hafa verið bornar, en sumar þeirra eru svo almennar að efni, að hvergi festir hönd á. Af þeim vettvangi hefur stjórnmálabar- áttan smám saman færst yfir í hreppapólitík og samkeppni um hylli stétta og samtaka, þar sem alls konar fyrirgreiðsla um styrki, leyfi, lán og hvers konar fríðindi eru helztu vopnin. Er það nú orðið eitt tíma- frekasta verkefni þingmanna og frambjóðenda, einkum frá hinum minni kjördæmum, að sýsla í slíku hér í höfuðstaðnum. ÞÆR KOSNINGAR, sem nú fara í hönd, virðast ætla að verða býsna sögulegar. Eftir margra ára stöðnun, hefur komizt rót á flokkaskipunina og þá væntanlega kjósendur líka,

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.