Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Blaðsíða 7
ÞÆTTIR
53
STEINN STEINARR:
(
ELINOR WYLIE
Net til að veiða vindinn:
Flýjandi djúpfiski
hlaðið glæru Ijósi
einskis.
Sólvængjuð hringvötn
búin holspeglum
fjórvíðra drauma..
Týnd spor
undir kvöldsnjó
efans.
Net til að veiða vindinn:
Eins og svefnhiminn
lagður blysmöskvum
veiðir guð.
og er það vel. Með kosningarbanda-
lagi Alþýðuflokksins og Framsóknar-
manna hefur flokkaskiptingin nálg-
ast tveggja flokka kerfi, enda þótt
stór flokkur sé enn til vinstri við þetta
bandalag. Því að nú má telja, að
„Hræðslubandalagið" svonefnda og
Sjálfstæðisflokkurinn hafi hvor um
sig nokkurt færi á því að vinna meiri-
hluta á þingi.
Sá hefur þó reynzt galli á gjöf
Njarðar, að dregið hefur verið í efa,
hvort löglegt sé að afla uppbótar-
sæta á þann hátt, sem stefnt er að
með samvinnu Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins. Landkj örstj órn-
in hefur að vísu ekki fallizt á þann
skilning, en yfir vofir, að kosning-
arnar verði gerðar ógildar af næsta
þingi. Má ætla að þess verði freist-
að, enda hafa í þessu efni komið
í ljós miklir og hættulegir gallar á
kosningafyrirkomulaginu. Með sam-
vinnu, er tryggði Alþýðuflokknum
uppbótarþingsæti út á óvirk atkvæði
Framsóknarmanna, hefðu þessir
flokkar getað náð öruggum þing-
meirihluta í síðustu kosningum út á
37,5% atkvæða. Þetta hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn þó getað komið í