Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 55
öagskrá
49
ráða fram úr dýrtíðaröngþveit-
inu. Hin nýskipaða ríkisstjórn
lýsti því yfir, þegar hún tók við
völdum, að hún myndi leggja
höfuðáherzlu á að leysa dýrtíð-
armálin. Aðgerðir ríkisstjórnar-
innar og þingsins í því efni
skiptast aðallega í fernt. Fyrsta
skrefið var lög um breyting á
lögum um dómnefnd í verðlags-
málum. Þau kveða svo á, að
ríkisstjórnin geti með auglýs-
ingu ákveðið, að ekki megi frá
ntgáfudegi auglýsingar og þar
til nánar verði ákveðið, þó ekki
lengur en til frebrúarloka 1943
hækka verð neinnar vöru,
hvorki innlendrar eða útlendrar
frá því sem það var lægst á
hverjum stað 18. des. 1942.
Samkvæmt þessu ákvæði var
svo gefin út auglýsing 19. des.
uni bann við verðhækkun, er
gilda skyldi til febrúarloka.
Annað skrefið var lög um inn-
flutning og gjaldeyrismeðferð.
í þeim er ákveðið um skipun
Viðskiptaráðs, en það hefir með
höndum ákvarðanir um, hvaða
vörur skuli flytja inn í landið,
hvernig farrými íslenzkra skipa
skuli ráðstafað, gjaldeyri til
vörukaupa erlendis, úthlutun á
iunflutningi, innflutning brýnna
nauðsynja ef nauðsynlegt reyn-
íst og ennfremur verðlagsá-
kvarðanir og verðlagseftirlit.
Viðskiptaráð fær i/2% af upp-
hæð innfiutningsleyfa til þess
að standast skrifstofukostnað
o. fl. Síðast í lögunum er tiltek-
ið að þau skuli falla úr gildi 6
mánuðum eftir að núverandi
Evrópustyrjöld sé lokið.
Þriðja skrefið er svo lög um
verðlag. í þeim er ákveðið að
Viðskiptaráð skuli hafa vald til
að ákveða hámarksverð á öllu
því er máli skiptir um verðlag
í landinu. Þar segir ennfremur
um skipun verðlagsstjóra, sem
er í rauninni framkvæmdastjóri
hjá Viðskiptaráði, hvað verðlag
snertir, þ. e. hann annast öll
dagleg störf viðvíkjandi verð-
lagsmálum og gerir tillögur til
ráðsins.
Fjórða og síðasta skrefið, og
það sem skipta átti mestu máli,
var lög um dýrtíðarráðstafan-
ir. Fjalla þau í fyrsta lagi um
njýjan skatt er nefnist verð-
lækkunarskattur og greiðist af
skattskyldum tekjum hærri en
tíu þúsund krónur eftir ákveðn-
um skattstiga, sem tiltekinn er
í lögunum. Þá er í lögunum á-
kvæði um skipun 6 manna
nefndar, er finni grundvöll fyr-
ir vísitölu framleiðslukostnaðar
landbúnaðarvara, er fara skuli
eftir við ákvörðun verðs þeirra,
og hlutfall milli verðlags land-
búnaðarvara og kaupgjalds
stéttarfélaga er miðist við það,
að heildartekjur þeirra, sem