Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 65
DAGSKRÁ
59
Sundlaugin í Grenivík i smíðum.
tftannvirkj um og íþróttafulltrúi verið í ráðum með staðsetningu
°S fyrirkomulag mannvirkjanna. Gefur það bezt hugmynd um,
hvernig þessum störfum er háttað.
1- Sundlaugar. Þær eru einna fyrirferðamestar, enda er kapp-
samlega að því unnið, að hægt verði að fullnægja skólaskyldu um
sundnám. Sundlaugar eru nú í smíðum á eftirtöldum stöðum:
Akranesi, ísafirði, Ásbyrgi í Miðfirði, Ólafsfirði, Grenivík og Þórs-
höfn. Sundlaugabyggingar eru að hefjast og nauðsynlegum undir-
búningi lokið á þessum stöðum: Stykkishólmi, Patreksfirði, Klúku
i Bjarnarfirði, Skagaströnd og Búðum í Fáskrúðsfirði. Þannig eru
það 14 sundlaugar, sem nú eru í smíðum eða nálega lokið.
Undirbúningur' að sundlaugabyggingum er hafinn á þessum 7
stöðum: Leirá í Borgarfirði, Kolviðarnesi í Hnappadalssýslu, Reyk-
hólum í Barð., Reykjarfirði í Suðurfjörðum, Barð., Þingeyri, Krossa-
nesi, Árneshreppi, Strandasýslu og Laugalandi í Hörgárdal. Þá
hefur íþróttanefnd nú umsjón með endurbótum og lagfæringum
a 13 eldri sundlaugum og er ennfremur í samráði við allmörg fé-
lög, einkum Umf., sem undirbúa byggingu viðleguskála og skýla
vlð heitar sundlaugar, tjarnir, uppistöðulón og sjó.