Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 25
dagskrá
19
Þá sýnir reynslan alveg ótvírætt, að Danir geta ekki veitt okkur
neina slíka vernd, því þeir eru því miður næstum eins varnar-
lausir og við, eins og hertaka Danmerkur sýnir.
Sum blöð landsins eru nú farin að halda því fram, að ódrengi-
!egt sé af okkur að segja skilið við Dani, á meðan land þeirra er
hertekið og áður en við getum samið við þá um skilnaðinn. Þessu
hefði mátt halda fram, ef skilnaðurinn hefði orðið árið 1942, eins
og sum þessi blöð virtust þá vilja, en það er ekki hægt að halda
Því fram nú. Við sömdum viff Dani árið 1918, m. a. um það, að við
hefðum rétt til að skilja við þá til fulls árið 1944. Við höfum oftar
en einu sinni látið þá vita, að við mundum nota þennan rétt. Það
er því ekki nein brigðmælgi af íslendingum að gera svo og við
höfum í sjálfu sér ekkert að semja um við Dani í þessu efni, þar
sem framlenging sambandsins kemur ekki til greina. Að vísu þarf
að semja við Dani síðar um ýms mál, en það er algengt að tvö
ríki semji sín á milli, þó þau séu ekki í sambandi og það kemur
ekki sjálfum skilnaðinum við, því að um hann höfum við rétt til að
taka einir ákvörðun á næsta ári, einmitt samkvæmt samningi við
Dani sjálfa og einnig af öðrum ástæðum. Að Danir reiðist okkur
svo vegna skilnaðarins, að þeir af þeim ástæðum verði erfiðari í
samningum um önnur efni síðar, er ósannað með öllu og næsta
ólíklegt og að gera ráð fyrir því eru í rauninni ljótar getsakir í
Þeirra garð. Að Danmörk er hertekin er að vísu mjög sorglegt og
ahir íslendingar hafa fyllstu samúð með Dönum í raunum Þeirra,
en ekki er hægt að sjá, að það mundi létta þær raunir neitt, þó við
frestuðum skilnaðinum nú. Mætti þá alveg eins búast við, að það
Þætti skyggja á gleði þeirra, ef íslendingar segðu skilið við þá um
Það leyti, sem þeir losna sjálfir undan útlenda okinu.
Mig furðar dálítið á, að þeir, sem nú eru hikandi í skilnaðarmál-
mu vegna samúðar við dönsku þjóðina, skuli ekki hafa borið fram
aðra ástæðu, sem mér virðist veigameiri og hún er tillitiff til kon-
ungsins.*) Enginn hefur, svo mér sé kunnugt, minnzt á það og væri
Það þó þess vert. Kristján konungur X. hefur á allan hátt verið
okkur hinn bezti konungur. Hann hefur gert sér allt far um að
kynnast landi og þjóð, komið 4 sinnum til landsins og hann einn
ahra Danakonunga kann eitthvað í tungu okkar. Hann hefur hald-
*) Grein þessi er rituð áður en umræður voru hafnar um afstöðuna til kon-
ungsins.
2*