Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 42
36
DAGSKRÁ
eftirtekt. Að vísu vöktu aðferðir
þær, sem valdhafar þessara
landa notuðu við framkvæmd
þessara tilrauna, mikla andúð
meðal lýðræðisþjóða, en þessi
andúð torveldaði hlutlausa
rannsókn þessara tilrauna.
Sovét-stjórnin hóf snemma að
skipuleggja framleiðsluna og
gerðu ýmsir sér vonir um, að
skipulögð framleiðsla væri í
sjálfu sér lausnin á vandamál-
um atvinnulífsins. En þeir, sem
vildu fylgja þessu fordæmi í
Vestur-Evrópu, gleymdu því oft,
að Rússland er algerlega á byrj-
unarskeiði atvinnulífsþróunar-
innar og hefur til umráða víð-
áttumikið landssvæði, sem er
enn ekki nýtt til fulls og fólks-
fjöldi er þar hratt vaxandi, lífs-
kröfur íbúanna mjög fátækleg-
ar, ekkert flutt út annað en hrá-
efni, og innanlandsmarkaður,
sem hægt er að auka nær tak-
markalaust, en við slíkar að-
stæður er offramleiðsla vart
hugsanlegur möguleiki. Þýzka
tilraunin var hins vegar lær-
dómsríkari, þar sem um var að
ræða mjög þroskað hagkerfi
með fjölbreyttan iðnað, sem
hafði verið örvaður með miklu
erlendu fjármagni skömmu áð-
ur og þar sem einkenni offram-
leiðslu voru mjög áberandi. Á-
ætlun Þjóðverja fólst í því að
skipuleggja neyzluna. í Rúss-
landi var hins vegar engin
þörf á því, að skipuleggja neyzl-
una, þar sem framboðið hafði
ekki við að fullnægja eftir-
spurninni. Þjóðernisjafnaðar-
menn leystu vandamálin með
skipulagningu neyzlunnar í
mynd almennra verklegra fram-
kvæmda, en þó fyrst og fremst í
mynd vígbúnaðar. Samin var
stórkostleg neyzlu-áætlun, sem
dró til sín alla framleiðslukrafta
þjóðarinnar, og vinnuafl, sem
þangað til hafði verið ónotað,
sogaðist inn í framleiðsluna,
sem þessi áætlun kom af stað.
Bæði í SovéÞRússlandi og Þýzka-
landi voru tengslin milli fram-
leiðslukostnaðar og verðs rofin.
Ákvörðun verðs, og launa í hlut-
falli við verðlag, var skoðað sem
félagslegt vandamál og lausn
þess var að nokkru leyti miðuð
við það, hve stórt hlutfall af
framleiðsluöflum þjóðarinnar
var notað til að sjá fyrir dag-
legum þörfum. í Englandi var
það einnig vígbúnaður — sem
er einfaldasta form neyzluá-
ætlunar — er stuðlaði verulega
að því, að bæta úr atvinnuleys-
inu. Síðan stríðið hófst, hefur
fengizt fullkomnari lausn á
þessum málum með því, að taka
upp sams konar skipulagningu
og framkvæmd var í Rússlandi
og Þýzkalandi á árunum fyrir
stríðið.