Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 59
dagskrá
53
batna. Má þó segja, að þjóðin hafi fram á síðari ár verið snauð af
^argvíslegum íþróttamannvirkjum, sem aðrar þjóðir hafa eignazt
°g nauðsynleg eru til þess að hefja íþróttirnar til vegs og gera
Þser að almenningseign.
Sundlaugabyggingar hefjast einkum í sambandi við héraðsskól-
ana fyrir 15—20 árum og hafa þeir haft margvísleg áhrif til þess
aö auka áhuga fyrir íþróttum, einkum sundinu. Margir æsku-
menn frá héraðsskólunum hafa gerzt brautryðjendur heima í átt-
högunum fyrir sundlaugum og öðrum menningarmálum.
Afskipti ríkisvaldsins af íþróttamálunum veru engin, nema það
sem skólana snerti og fjárhagslegur stuðningur sáralítill. í Reykja-
vík og kaupstöðunum báru íþróttafélögin allan veg og vanda af
iþróttakennslu og mannvirkjum, en ungmennafélögin í þorpum
°g sveitum. Á þeirri þróun íþróttamálanna eru íþróttalögin grund-
v°Huð og bæta úr margvíslegum vanefnum, er jafnan hafa háð
iþíóttastarfsemi landsmanna, eins og komið hefur fram í ýmsum
iuyndum.
III.
Upphafsmaður þessarar löggjafar er Hermann Jónasson, þáver-
andi forsætis- og kennslumálaráð-
herra, Hann er, eins og kunnugt er,
ágætlega íþróttum búinn, enda get-
ið sér þar mikinn orðstír, og á-
hugamaður mikill um íþróttamál.
Hann skipaði níu manna nefnd
þann 13. apríl 1938, er „geri tillög-
ur til ríkisstjórnarinnar fyrir næsta
reglulegt Alþingi, hvernig hag-
kvæmast verði að efla íþróttastarf-
semi og líkamsrækt meðal þjóðar-
innar, fyrst og fremst með það
sjónarmið fyrir augum, að áhrif
íþrótta til þroska, heilsubótar og
hressingar nái til sem flestra í
þessu landi.“ — í nefndina voru
þessir skipaðir: Pálmi Hannesson
Hermann Jónasson. rektor, sem var formaður henn-
ar, Steinþór Sigurðsson magister,