Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 50
44
efnilegir menn stunda nú nám
erlendis, viðkomandi þessum
málum, beinlínis með það fyrir
augum að snúa atvinnuháttum
og vinnuaðferðum vorum til
hins betra. Má mikils vænta af
þeim í náinni framtíð. En það
er einnig annað, sem er mjög
mikilvægt, en það er, að það
komist inn hjá almenningi, að
hér þarf mikilla umbóta við.
Þetta er í rauninni grundvöllur,
sem þarf að vera fyrir hendi til
þess, að þeir, sem til umbót-
anna hafa lært, geti hafið hér
störf sín.
Annað mál, sem er mikilvægt,
er þingsályktunartillaga um
síldarmjöl til fóðurbætis. Fel-
ur þingsályktunartillagan það í
■sér aðallega, að bændum verð-
ur tryggt nægilegt síldarmjöl
með sanngjörnu verði og ó-
skemmt. Eins og kunnugt er,
var haustið 1942 mikill mis-
brestur á því, að mjölinu
væri úthlutað á þann hátt að
viðunandi væri. Einnig bar
nokkuð á skemmdum í því.
Þá eru lög um búfjártrygg-
ingar. Gera þau ráð fyrir sér-
stakri deild hjá Brunabótafé-
lagi íslands, sem fari með þessi
mál. Hafa nú um nokkurt skeið
verið gildandi heimildarlög um
þetta efni, en nú er með þess-
um lögum gert að skyldu að
hafa þessa deild, enda þótt hér
DAGSKRÁ
sé ekki um skyldutryggingu að
ræða nema að nokkru leyti.
Önnur landbúnaðarmál eru
lög um ráðstafanir til að greiða
fyrir viðskiptum með slátur-
fjárafurðir og ákveða verðlag á
þeim, þingsályktun um ráðstaf-
anir til eflingar íslenzkum
landbúnaði og þingsályktun um
kaup og innflutning á hey-
vinnuvéium og öðrum nauðsyn-
legum landbúnaðarvélum fyrir
næsta sumar. Ennfremur mætti
nefna frumvarp um kynnisferð-
ir sveitafólks, sem flutt var til
samræmis við lög um orlof, sem
tryggja launþegum ákveðið or-
lof ásamt kauphækkun til þess
að geta notfært sér það. Frum-
varpið varð ekki útrætt. Ýmsir
liðir snertandi landbúnaðinn
voru teknir upp á fjárlög. Má
þar nefna stofnun sauðfjár-
ræktarbús á mæðiveikisvæðinu,
sem veitt er til allt að 100 þús.
kr. Til byggingar mjólkurstöðv-
ar í Reykjavík eru veittar 300
þús. kr. og til stofnunar véla-
verkstæðis fyrir landbúnaðar-
vélar, er Búnaðarfélag Suður-
lands lætur reisa, 50 þús. kr.
IV. Rafveitumál.
Eins og kunnugt er, hafði áð-
ur verið, að tilhlutun Fram-
sóknarmanna, skipuð milli-
þinganefnd í rafmagnsmálum.
Ætlazt er til, að hún geri tillög-