Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 60
54
DAGSKRÁ
Aðalsteinn Sigmundsson kennari, Guðmundur Kr. Guðmundsson
skrifstofustjóri, Erlingur Pálsson yfirlögregluþjónn, Jón Þorsteins-
son íþróttakennari, Erlendur Pétursson forstjóri, Jón Kaldal ljós-
myndari og Óskar Þórðarson, læknir,
Nefndin vann stórmikið og merkilegt starf. Hún kynnti sér ræki-
lega skipan íþróttamálanna um allt land og hafði samband við
ungmenna- bg íþróttafélög, samtök kennara og skólana. Þá aflaði
hún sér upplýsinga um skipulag íþróttamálanna á Norðurlöndum
og öðrum löndum í Evrópu, sem eiga sér góða íþróttamenningu.
Að því búnu samdi hún frumvarp til íþróttalaga og tók það sára-
litlum breytingum í meðferð þingsins.
IV.
íþróttalögunum er skipt í 6 kafla og 31 gr.
Fyrsti kafli kveður á um stjórn íþróttamálanna. Fræðslumála-
stjórnin hefur yfirumsjón þeirra, en hefur til aðstoðar um stjórn
og framkvæmd íþróttamálanna, íþróttafulltrúa og íþróttanefnd.
íþróttafulltrúi er ráðinn til þriggja ára í senn að fengnum tillög-
um íþróttanefndar, en hún er skipuð þremur mönnum, til þriggja
ára í senn. Kennslumálaráðherra skipar einn og er hann formað-
ur nefndarinnar, hinir eru skipaðir samkvæmt tilnefningu U. M.
F. í. og í. S. í. Ráðherra setur íþróttafulltrúa erindisbréf. Verk-
efni íþróttanefndar eru m. a. að úthluta fé úr íþróttasjóði og
vinna að eflingu íþróttamálanna. Getur hún gert tillögur um allt,
sem að þeim lýtur.
Annar kafli er um íþróttasjóð. Ákvæði um fjárveitingar til hans
og hversu honum skuli varið. Rétt til fjár úr íþróttasjóði eiga í. S. í.
og U. M. F. í. og sambandsfélög þeirra. Þá bæjar-, sveitar- eða
sýslufélög og skólar. Þegar íþróttamannavirki eru byggð, þá skal
íþróttanefnd hafa samþ. uppdrætti og stað, og er það skilyrði fyrir
styrk úr íþróttasjóði.
Þriðji kafli er um íþróttir í skólum. Er þar svo fyrir mælt, að þær
skuli vera skyldunámsgrein. Undanþágu má þó veita í sundi fyrstu
fimm árin, í þeim skólahéruðum, sem enn vantar öll skilyrði til
sundkennslu. Nemendur skulu fá tækifæri til að stunda útiíþróttir
eftir því sem fært þykir og eiga kost á tilsögn í ísl. glímu. í öllum
barnaskólum og öðrum almennum skólum skal fara fram kennsla