Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 73
dagskrá
67
Þarf að hefja ræktun á svæðum,
sem gefa nú ekkert af sér, en
annars staðar er landið ofsetið
°g í þeim tilfellum þarf að veita
fólkinu, sem í þessum héruðum
býr, aðra atvinnu.
Fulltrúarnir viðurkenndu, að
gagnslaust væri að framleiða
^eiri matvæli, ef menn og þjóð-
ir hafa ekki kaupgetu til að afla
Þeirra, m. ö. o. það er ekki hægt
að vinna bug á skorti nema um
leið eigi sér stað jöfn og víð-
tsek aukning atvinnulífs og við-
skipta. Deild sú, sem átti að
fjalla um bætta dreifingu, taldi,
að neytendum muni ókleift að
kaupa þau matvæli, sem þeir
hafi þörf fyrir, og framleiðendur
Seti ekki verið öruggir um
sæmilega afkomu, nema gerðar
séu ráðstafanir til að tryggja
öllum atvinnu, því að fátækt er
fyrsta orsök næringarskorts.
Lausn þessa máls verður því að
byggjast á mjög víðum grund-
velli, því að það er í nánu sam-
bandi við ýmsa þætti viðskipta-
iífsins, svo sem atvinnuástandið
f hinum ýmsu löndum, þróun
iðnaðarframleiðslunnar, stjórn
gjaldeyrismála, stefnu fjár-
magnsstrauma og afstöðu yfir-
valda til milliríkjaverzlunarinn-
ar.
Þá var rætt um möguleika á
alþjóðlegum samningum um
skipulag á sölu þýðingarmikilla
næringarefna í þeim tilgangi, að
koma í veg fyrir verðsveiflur
þessara vara og ósamræmi milli
framleiðslu og eftirspurnar.
Neytendur og framleiðendur
skulu vera aðiljar að slíkum
samningum.
Það kom snemma í ljós á ráð-
stefnunni, að fulltrúarnir voru
þeirrar skoðunar, að setja þurfi
á laggirnar sérstaka stofnun, er
hafi þessi mál með höndum.
Stofnun þessi ætti að veita upp-
lýsingar og ráð í málum varð-
andi landbúnað og matvæla-
framleiðslu og hafa á hendi al-
þjóðlega skýrslugerð. Að öðru
leyti var ekki rætt um nánari til-
högun þessarar stofnunar, um
það yrðu hinar ýmsu ríkisstjórn-
ir að koma sér saman. Var því
lagt til, að skipuð yrði bráða-
birgðanefnd, sem m. a. ætti að
skipuleggja störf framan-
greindrar stofnunar.
Þessi ráðstefna hinna sam-
einuðu þjóða hefur sýnt, að
hlutaðeigandi stjórnarvöld eru
sammála um nauðsyn þess, að
gera ráðstafanir hver í sínu lagi
og í sameiningu til þess að vinna
bug á skorti. Skýrslur og til-
lögur ráðstefnunnar sýna enn-
fremur, að samkomulag er um
leiðir að þessu marki. Ráðstefn-
an hefur því talið æskilegt, að
hinar ýmsu ríkisstjórnir viður-
kenni gagnvart hióðunum og
5*