Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 70
Matvælaráðstefnan í Hot Springs
/ íslenzkum blöðum hejur lltið verið sagt frá störfum ráðstefnu
þeirrar, sem haldin var í Hot Springs í Virginíufylki í Banda-
ríkjunum dagana 18. maí — 3. júni síðastl. Bandaríkjastjórn
bauð hinum sameinuðu þjóðum á þennan fund til þess að rœða
um framleiðslu matvœla og um landbúnaðarmál. Ráðstefna þessi
er merkileg fyrir það, að þar kemur greinilega í Ijós hinn nýi
félagslegi andi, sem nú ryður sér mjög til rúms með hinum engil-
saxnesku þjóðum og sem við íslendingar gœtum haft gott af að
kynnast. Tilgangur ráðstefnunnar er, að hinar sameinuðu þjóðir
bindist samtökum um að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til
þess að tryggja öllum þjóðum og öllum mönnum nœga og holla
fœðu. En auk þess hefur ráðstefna þessi sérstaklega þýðingu fyrir
okkur. íslendinga, þar sem nœr allt okkar atvinnulíf byggist á
framleiðslu matvœla.
Lönd þau, sem þáðu boð Bandaríkjastjórnar og sendu fulltrúa
á ráðstefnuna, voru:
Ástralía Filippseyjar Júgóslavía Nýja-Sjáland
Belgía Frakkland Kanada Panama
Bólivia (frjálsir Frakkar) Kína Paraguay
Brasilía Grikkland Kolumbía Perú
Chile Guatemala Kúba Pólland
Costa Rica Haiti Líbería Sovét-Rússland
Dominika Honduras Lúxemburg Stóra-Bretland
Ecuador Indland Mexikó Suður-Afríka
Egyptaland Irak Niðurlönd T ékkóslóvakía
El Salvador íran Nicaragua Uruguay
Etiópía ísland Noregur Venezúela
F'ulltrúar íslands á ráðstefnunni voru Thor Thors, sendiherra,
Ólafur Johnson og Helgi Þorsteinsson.
Hér fer á eftir l íslenzkri þýðingu yfirlit um störf ráðstefnunnar
eftir aðalritara hennar.
Ráðstefna hinna sameinuðu landbúnaðarmál var haldin til
þjóða um matvælaframleiðslu og þess að ræða um það, hvernig