Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Blaðsíða 9
DAGSKRÁ
3
Þórarinn Þórarinsson ritstjóri:
Vegnr Baldvins
i.
Pyrir rúmum 110 árum, þegar þjóðin bjó við þrengst kjör í fjár-
hagslegum og stjórnarfarslegum efnum, hóf ungur maður, Baldvin
Einarsson, merki nýs tíma. Þrátt fyrir erfiðan fjárhag, byrjaði
hann útgáfu tímarits, er flutti þjóðinni boðskapinn um framsókn
og endurreisn. Hvorki tímaritið eða útgefandi þess áttu langt líf
fyrir höndum, en þó gróðursetti það þau fræ, sem borið hafa bezta
ávexti á íslandi. í fótspor Baldvins komu Fjölnismenn, Jón Sig-
urðsson og aðrir viðreisnarmenn, er héldu áfram starfi hans, end-
urheimtu frelsi þjóðarinnar og komu henni aftur á bekk með
menningarþ j óðum.
Fyrir unga menn er það jafnan hollt að kynnast djörfum og
giæsilegum brautryðjendum, líkt og Baldvin Einarsson var. Slík
kynning er ekki sízt holl á tímum upplausnar og niðurrifs, svip-
uðum þeim, sem nú ríkja hjá íslendingum. Þótt viðfangsefnin
séu orðin önnur en á dögum Baldvins, getur samt grundvöllur
og sjónarmið viðreisnarinnar verið með líkum hætti.
í þeirri stuttu grein, sem hér fer á eftir, verður því reynt að
skýra frá grundvallarstefnu Baldvins, jafnframt og athugað er,
hvert erindi hún getur átt til íslenzku þjóðarinnar um þessar
mundir.
II.
Baldvin lætur tímarit sitt, Ármann á Alþingi, hefjast með þeim
hætti, að þrír menn hittust á Hofmannaflöt hjá Þingvöllum.
Þessir menn eru Sighvatur bóndi úr Skagafirði, Þjóðólfur bóndi úr
Flóa og Önundur þurrabúðarmaður af Seltjarnarnesi.
Sighvatur var „vel skapi farinn, stilltur og hógvær, gætinn í orð-
um og mjög varkár í dómum sínum um þá hluti, er hann ekki
þekkti til hlítar. Hann var vel viti borinn og manna siðprúðastur
í sinni stétt. Hann var búsýslumaður mikill, og búnaðist honum
vel, enda hirti hann manna bezt jörð sína. Þó var hann ekki rík-
ur haldinn, því, að hann hafði mikla fjölskyldu að annazt“.