Árbók skálda - 01.12.1955, Page 37
35
Um kvöldið kemur Ásbjöm heim með margar tegundir aí
ilmvötnum og byrjar undir eins að stökkva herbergið. Hann
hafði einnig keypt vaxdúk, sem hann breiðir yfir kistuna, því
að í henni geymir hann skerpukjötið.
Eftir þetta ræstir hann herbergið á hverju kvöldi. Eitt kvöldið
kemur Stefanía inn til hans og kvartar yfir þessari ilmvatns-
sterkju eins og hún orðar það. Hún er reið og segir, að honum
sé ekki leigjandi.
Haustið nálgast. Eitt kvöld, þegar Ásbjörn kemur heim úr
vinnunni, kemur brezkur hermaður á bifhjóli. Hann skilur
hjólið eftir á vegarbrúninni og gengur til Ásbjamar með stór-
an pakka og spyr eftir Jónu Ketilsdóttur. Ásbjöm skoðar
pakkann og býðst til að koma honum til skila. Hermaðurinn
lætur það gott heita og ekur í burtu. Ásbjörn tekur pakkann
og fer með hann upp á loft til sín, opnar hann og skoðar
innihaldið. I pakkanum er dýrindis náttkjóll úr austurlenzku
silki, útsaumaður, alsettur stjörnum og hálfmánum og minnir
á búning austurlenzkra vitringa og spámanna forðum, eins
og þeir eru sýndir á myndum í ævintýrabókum. Hér vantaði
aðeins keilulagaða húfu, til þess að slíkur búningur væri
fullkominn. 1 pakkanum var líka konfektkassi og nýjasta gerð
af brjóstahöldum. En enginn miði var þar, sem gat ljóstrað
upp um hinn raunverulega gefanda.
Ásbjöm er sannfærður um það, að þetta er gjöf frá ein-
hverjum amerískum liðsforingja. Liðsforingjamir þurfa ekki
að stela af snúrum til þess að gefa stúlkunum. Þeir hafa hátt
kaup. Og ef þeir eru þjófóttir, eiga þeir betra með að stela
án þess að upp komist. Já, og aðstaða þeirra til að stela úr
birgðaskemmum hersins er betri en hjá óbreyttum hermönn-
um. Ef til vill hefur liðsforinginn stolið þessu frá fínu fólki hér
í höfuðstaðnum, ef til vill ekki? Um þetta hugsar Ásbjöm fram
og aftur, meðan hann skoðar þessar fögru gjafiir. Það er ekki
laust við, að hann fyllist samúð með hinum óbreytta her-
manni, sem stökk svo fimlega yfir hliðið og stal undirfötunum
hennar Stefaníu. Flestir hinna óbreyttu hermanna em fátækir