Árbók skálda - 01.12.1955, Page 98
I Ó N Ó S K A R
barniÖ, hundurinn
Þctð var þegár ég var tíu ára, að ég kom að máli við móð-
ur mína og sagði: Mið langar að fara í sveit. Mig langar til
að ríða út á hestum og reka beljur og slá og raka hey.
Jæja, sagði móðir mín.
Og svo einn góðan veðurdag lagði ég af stað frá móður
minni og föður mínum, og faðir minn hafði lóð mér trollpok-
ann sinn, og móðir mín hafði raðað niður í hann fötunum
mínum, sem ég átti að hafa með mér.
Síðan er ekki að orðlengja það, en fyrr en varir er ég kom-
inn margra kílómetra vegalengd frá foreldrum mínum, og um
það leyti sem fuglarnir ganga til náða í logni kvöldsins, tíni
ég af mér spjarimar hjá ókunnugu fólki.
Hér er ekki gamall sveitabær.
Hér er nýbýli, steinsteypt hús.
Svo líða nokkrir dagar.
En hér er líka bam. Og það hefur bara lifað eitt ár og
nokkra mánuði. Það er einstaklega fallegur drengur, sem öll-
um þykir vænt um, sérstaklega móður hans. En hvað um
barnið? Til hvers er það í smásögunni? Jú, sjáum til, það er
aðalatriðið í smásögunni, það er það sem allt snýst um, líkt
og hnettimir um sólina.
Húsmóðir mín var ung kona og fríð.
Þegar hún talaði til mín sagði hún: Nonni minn. Hún sagði
alltaf: Nonni minn, og aldrei annað.