Árbók skálda - 01.12.1955, Síða 105
103
ég honum á kinnina ofurhlýlega og segi: Það er svo kalt úti,
eigum við ekki að fara inn?
Jú, sagði litli drengurinn.
Og ég tók í hægri hönd hans, litla barnshönd, þó að mín
væri einnig lítil, og þannig leiddi ég hann inn, ég tíu ára,
hann eins árs.
En þegar inn kom, sagði ég: Honum var svo kalt, hann
vildi fara inn.
En meðan húsmóðir mín var að færa drenginn úr svörtu
kápunni og taka af honum vettlingana, sætti ég lagi cg
smeygði mér út í hið kaldranalega vor. Þegar ég var að
leiða drenginn inn, hafði ég tekið eftir hundi, sem kom labb-
andi eftir mýrinni. Ég vissi hvaða hundur það var, gamall,
loðinn með hvíta rönd yfirum sig framarlega, — og guð hafði
víst sent hann til mín.
Ég hljóp á móti honum og sá að hann dillaði rófunni, því
að við þekktum hvor annan. En þegar ég kom að honum,
fleygði ég mér á ber hnén í mýrina og tók hann í fang mér.
Ég hélt blýfast utan um hann, eins og börn halda um háls
móður sinnar, þegar þau eru hrædd. En ég þagði ekki. Ég
talaði. Ég sagði: Snati minn, því að ég hafði gefið honum
nafn, og hundar verða að hafa einhver nöfn, þó að þeir séu
flækingshundar. Snati minn, ég er svo vondur. En ég var
ekki grátgjarn og þess vegna grúfði ég mig inn í skítugan,
loðinn feld hundsins og beið þess, að yrði heimsendir.
Og nú er þessi saga ekki lengri.