Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 29

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 29
veit ég er grimm, en hvað þýðir að vera með velgjuskap í lífinu? GUNNL. Ég ski!... Þögn. Þú vilt setjast um kyrrt, hérna, undir- eins ... En gættu l>ín: þú veist ekki leng- ur hver ég er .. . Hann gengur hratl jramfyrir bar- borðið, horlir á spegilinn. Ég er orðinn gamall Helga, gamall! .. . Hann snýr sér að henni. Færi mér ekki vel að hafa hærur, hor í nefi, og rauða hvarma? ... Svo mundi ég benda á hækjukallinn og segja roggnum róini: ennþá geng ég þó staflaust! ... Og ég sé vel á bók! .. . Heyrnin ha?.. Jújú, ég heyri enn til sjálfs mín, svona nokkurneginn . . . (hrópar) Ég trúi ekki lengur lyginni! Helga rís á fcetur, óttaslegin. HEI.GA. Hvað gengur eiginlega að þér? GUNNL. (snýr sér undan, hendur fyrir andlit) Ég er staddur í völundarhúsi Helga, og ég bið þig: biddu mín fyrir utan þangað til ég kem út... (harðari) Ef það verður ekki fyrir veturinn hefurðu einskis að sakna. HELGA. Æi, nú hefurðu gert mig dapra einu sinni enn .. . MYRKUR. 1. þáttur, 3. atriði, ALÞJÓÐ, BLAÐ FRAMFARASINNA SPURÐI í MORGUN: HVER VILL Á- BYRGJAST KAPÍTALIÐr ENDA ÞÓTT FÁIR SÉU STADDIR Á TORGI KVÖLDS- INS BÓLAR ÞAR SAMT Á ANNARRI SPURNINGU: ER RÉTTLÆTI HUGAR- BURÐUR? Gangstéttin. Maður í svörtum jrakka. með svartan kollháan hatt og hvita hanska, staf, og vindil í munni, stendur hjá Ijósa- staur. Illugi, faðir Gunnlaugs, kemur án þess að sjá hann og hraðar sér, hlaðinn niðursuðuvörum, upp tröpp- urnar ... Maðurinn lyftir stafnum. ILLUGI. Hver þar? MAÐURINN. (blæs frá sér vindilstroku) Það er nú ég Ulugi: gamall vinur. lUugi snýr sér að honum. ILLUGI. Ásbjörn! Eftir öll þessi ár! .. Og þú ávarpar mig! .. ÁSBJÖRN. Þarf ég að biðjast afsökunar? ILLUGI. Þú ... Hann hlœr. Þú, hinn mikli, sjálfgerði, margkrossaði blaðamatur vegna innihaldsríkrar um- hyggju um almúgann í landinu, árlegur merkisafmælismaður, sæll af happaglöpp- um og eiginrammleik, með augun síopin í turni ofar fjöllunum, og hjartað ötult í hreyfli fjölþættrar verksmiðju ... ÁSBJÖRN. Þetta er nóg! ILLUGI. Og ég, hérna á tröppunum mínum, með dósir... Það væri nú skárra ef þú þyrftir að biðjast afsökunar! ÁSBJÖRN. Ja ég er nú samt kominn til að biðja þig afsökunar. .. Ég veit bara ekki hvort ég hef nokkurn rétt til þess .. . Við ógum salt, sjáðu til, í kompaníinu . .. Við gættum þess lengi að halda balansinum, og okkur tókst það, með herkjum að vísu, því ég var hæfileikameiri ... Var það mér að kenna að þú fórst niður en ég upp? ... Þögn. Hann horfir fram. Undarlegt! ... Síðan ég frétti þú værir las- inn hefur þetta sótt dálítið á mig ... Eink- um á kvöldin sko af því þá er ég einn ... Samviskan, hchehe, samviskan er nú alltaf dálítið... ILLUGI. Það er hláttáfram fallegt af þér Ás- björn minn, að muna eftir mér svona undir lokin, og hjartnæmt að þú skulir eyða áríð- andi kvöldi í að veita mér nábjargirnar ... En gáðu að: menn deyja aðeins einu sinni .. . Eða hefurðu gleymt því að ég á son? ÁSBJÖRN. Enga beiskju Illugi! . .. Engar ávirðingar! ... Ég kem til þín einsog jafn- ingi ... Hann horfir fram. Hví getur ríkur maður ekki talað við fá- tækan mann? Stendur nokkur nær hjarta sigurvegarans en einmitt hinn sigraði? . .. Meðölin gilda einu: sigur er sigur ... Sá sem kemst upp hlýtur að hafa réttinn, ann- ars kæmist hann ekki upp ... Trúirðu ekki á guðlega forsjón? ... Utí náttúrunni, þeg- ar úlfur ræðst á saklaust Iambið og klippir sundur hálsæðarnar í einum skelli ... ja DAGSKRA 27

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.