Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Qupperneq 33

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Qupperneq 33
skrif eiga að lánast.) En hitt vil ég leyfa mér að efast um að ekki finnist hér markaður eða áhugi fyrir þessari grein bókmennta. Ég hehl einmitt að greinar og ritgerðir um bókmenntir á almennum grundvelli gætu orðið bók- fúsum mönnum hið mesta hnoss, og meðal annars gætu þær orðið til að skýra margt um eðli, tilgang og innri rök hinna yngri bókmennta okkar sem umdeildastar liafa vcrið á síðustu árum. Sá hefur einmitt verið tilgang- ur þessarar síðustu árbókar, og því er þetta rifjað upp að mér finnst að þar sé alltof óvíða lagzt djúpt eða settar fram skoðanir á þessum mál- um sem verulegur fengur er að, en alltof oft látið vaða á súðum og rnest hjalað um þau mál er minnstu skipta. I einni greininni í Arbók ,58 koma fram ummæli sem mér sýnast svo athyglisverð að ég leyfi mér að tilfæra þau hér. iNIatthías Johannes- sen segir í Bréfi til Árbókar: ,,Og ég hef alls engan áhuga á því að nefn- ast skáld á nútímaíslenzku. Það orð hefur glatað sinni u])prunalegu feg- urð og merkir einna helzt í minni vit- und: vikapiltur — ef ekki fyrir sjálf- an sig þá einhverja pólitíska ofstæk- isstefnu eða eitthvað ennþá órnerki- legra. Svo djúpt erum við sokknir, svo langt erum við leiddir í þessari grimmu veröld haturs og bræðravíga að fegursta orð tungunnar er eins og umskiptingur í gamalli þjóðsögu.1' Skyld hugsun kemur fram hjá Sigurði Þórarinssyni í ritdómi á öðrum stað í þessu riti þótt ekki sé jafn langt gengið. Hann ræðir um ungt og efni- legt ljóðskáld og segir síðan að slíkt orð verði ekki haft „um einn af tíu, DAGSKRÁ sem gefa út ljóðabók í þessu landi og kallast skáld á eftir. Það hvarfl- ar stundum að manni, að ekki veitti af að lögvernda heitið skáld.“ Sízt vildi ég gera þessum mætu mönnum upp skoðanir eða bera þeim á brýn hatur á skáldskap. En um- mæli þeirra tek ég hér upp vegna þess að mér virðast þau geta þjón- að sem nokkurt dæmi um við- horf allmargra til ungra skálda — og jafnvel ungra lista yfirleitt: þeir ungir menn er skáldheiti hefur af ein- hverjum ástæðum festst við séu yfir- leitt heldur ómerkilegir mannskrattar og skömm að þeim víðast hvar, verk þeirra jafnvel enn leiðinlegri en sjálf- ir þeir, og bezt að öll hersingin væri komin út í eitthvert geirfuglaskerið með öll sín atómljóð svo að heiðar- legir menn fengju að vera í friði með sinn bissniss. Ekki veit ég hversu útbreitt þetta viðhorf er, en óneitanlega verður áþekkra skoðana furðuvíða vart, og kæruleysi alls þorra manna gagnvart verkum ungra skálda er mcð fádæm- um. Að vísu má hafa það yfir sér til huggunar að allur góöur skáldskapur finni fyrr eða síðar lciðina lil lesenda og ekki skipti meginmáli hvort það verði í dag eða á morgun. En vinni það viðhorf er hér hefur verið lýst út- breiðslu meðal alls almennings er það þar mcð orðið stórhættulegt. Ég býst ekki við að nokkur telji í fnllri alvöru íslandi mestan hag í því að hér legg- ist niður bókmenntaiðja í framtíð- inni. En maður hefur fullt leyfi til að spyrja hver verði framtíð íslenzkra bókmennta ef allur almenningur tek- ur verkum ungra skálda aðeins með 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.