Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 41
Álmasveigi llmarinen
œtlar hún að jaxla í tætlur.
Örninn vaski veiðigjarni
vœngjateitur bráðar leitar.
Hreisturgeddu höndla freistar
Heljarfljóts úr löðuréljum.
Fiskur dregur fuglinn vaska
í feiknadjúpið stórra teikna.
Úr kafi pessu hann sig hefur,
hefur sig úr djúpu kafi
ataður leiri. Árbotn seyrinn
auri litaði vatnið tœra.
Loftið klýfur seiðfugl, svífur,
síðan aftur preytir stríðið,
annarri geddu kló í kinnar
krækir fast og ákaft sœkir.
Hinni pétt um kaldan klettinn
klónni grípur, efstu nýpu.
Hnyklcjast á og ólmir rykkjast
örn og fiskur, laust við miskunn.
Losnar kló af kletti frosnum,
kemst úr háska vatnaskrímslið.
Kafar gedda í kólguhafið,
klónum rispuð hylst í sjónum.
Örninn frár með koparklœrnar
knýst um fast á vöstum, röstum.
Vœngjum undan elding slöngvar,
augun skjóta vöndum loga.
Örninn frár með koparklærnar
krafsar geddu úr djúpi hafsins
pakta skél með pykkri hvelju,
prífur geddu úr hrannadrífu.