Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 58

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 58
Þessi ummæli ber aff skilja einkum sem hrós. Nokkur smáljóðanna eru að mínum smekk undur falleg. Ég nefni sem dæmi ljóðið Af |)ví að sorgin kom og mun koma og ann- að, er nefnsit Dagurinn Iíður. Og fyrir bregð- ur í bók þessari ljóðum, dæmi: Djúp eru vötn- in, I þessum húsum og Tvö hús á jörðu, sem bera vott um vaxandi þrótt og sýna, að höf- undur þeirra unir sér ekki alltaf í fílabeins- turni. Hann skynjar næmu skáldskyni hvað cr að gerast í kringum hann. Fátt vekur mér meiri unað en tær og hrein lýrikk, en þó á ég auðvelt með að skilja sænska ljóðskáldið Stig Carlsson, er hann í nýlega ortri hvatningu til ungra sænskra Ijóðskálda segir (í lauslegri þýðingu): Hvessið orð yðar. Hefjið þau hátt mót storminum og látið þau fyllast veruleika. Alltof mikið af fegurð lyppast niður í lognmollu tómleikans þar sem orðin klístrast eins og kámugar flíkur við tignartrón tilgangslcysisins. Sigtirður Þórarinsson. Misheppnaðar Ijóðaþýðingar Guðmundur Frímann: Undir Bergmils- íjöllum. Isaíoldarfrentsm. h.f., Reykja- vík, 1958. Guðmundur Frímann er Iöngu orðinn kunnttr sem lipurt ljóðskáld. Hann hefur inn kunnur sem lipurt Ijóðskáld. Hann hefur ort mörg lagleg Ijóð, án þess þó að um veruleg tilþrif sé oft að ræða. Ekki er langt síðan hann hlaut opinberan heiðursprís. E.t.v. Iiefur sú upphefð eitthvað slævt sjálfsgagnrýni hans. Víst er um það, að í því safni ljóðaþýðinga, sem hann nú hefur látið frá sér fara, er ýmis- legt. sem lítt er sæmandi góðskáldi. Lesend- um Magnúsar Ásgeirssonar og Helga Hálf- dánarsonar er ekki hægt að bjóða hvað sem er um þýðingar, allra sízt ef tækifæri til sam- anburðar eru gefin, eins og gert er í þessari bók. Guðmundttr Frímann þýðir m. a. hið kunna kvæði Dan Anderssons, En spelmans jordafard. Það er fróðlegt að bera saman þess- ar þýðingar; Magnús er nákvæmur og strang- heiðarlegur og reynir hvergi að skjóta sér undan erfiði eða snúa sér út úr því á 56 billegan hátt eins og Guðmundur margoft ger- ir. í frumkvæðinu undirstrikar hrynjandin með hinum síendurteknu jömbum á áhrifamikinn hátt hið þttnga þramm þeirra, er bera lík fiðl- arans, og má auðvitað ekki út af þessu bregða, en þetta fer allt á ringulreið hjá Guðmundi og þar með fordjarfar ltann stemningu kvæðisins. Minna gerir að hann sleppir innrími, þar sem það er í tveimur erindanna, og var það þó óþarfi af jafn miklum rímara og ekki lætur Magnús það henda sig. Ég tek hér tvö dæmi til samanburðar á þýðingunum. Andersson: Han var ttnderlig och cnsam, saga fyra svarta man. han led ofta brist pl husrum och bröd. — Se, en konung. saga rosorna och trampas pl igcn. Sc, en konung och cn drömmarc ar död! Guðmtindur: Hann var einrænn og dulur, segja fjórir fylgdarmenn. og fátæktin var eina brúður hans. En rósirnar á engjunum kalla hann konung enn, þótt kveðji dauðinn hann til grafarranns. M agnús: Hann var undarlegur, segja fjórir svartir fylgdarmenn, og við sult og hrakning bjó hann flest sin ár. Sjáið konttng, segja rósirnar og kikna og traðkast enn, hér er kt nungur og draumamaður nár. Andersson: Over ljung och gula myrar gttngas hlrda döda ben, gungas tröttsamt genom solens bleka ro. Men nar kvallen svalkar harligt över lingonris och sten hörs det tunga tramp i Hedemora nto. Guðmundur: Yfir lyngása og mýrar þokast leifar látins ntanns, er ljómi dagsins blandast aftanró. En er kvöldblærinn þýtur og þreytir um holtin dans cr þrammað gegnum Hreimsstaðaskóg. Magnús: Yfir lyng og gular inýrar beinin þokast þung og hörð ruggast þreytulega í sólskinsbleikri ró. DAGSKRA

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.