Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Síða 60

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Síða 60
Af ljóðuntim tveimur úr Fridas visor eftir Birger Sjöberg er hið fyrra, Frida i varstad- ningen, skrambi vel þýtt og er þó ekki auð- velt að þýða það. Ur sfðara ljóðinu, Bleka dödens minut, fellir þýðandinn, alveg að á- stæðulausu. tvö erindi burt, hcfur máske hrein- lega gefizt upp á að þýða þau, og í síðasta erindinu er þýðingin á tveim Ijóðlínum hreinn horror. Sjöberg yrkir: Kan min ande med dimfingrar*) di vanligt vinka — nog görer den sá! en Guðmundur Frímann þýðir: Og mcð vinsemd ég veifa ti! þín þó að visin sé náhöndin mín. Það er fjarri því, að Sjöberg liafi ætlað að hafa einhvern Myrkárdjáknastæ! á uppburð- arlitlum búðarpiltinum hennar Fríðu og þess- ar tvær línur fara alveg með þetta idylliska, kankvísa erindi í kvæðislokin. Nú er títni til kominn að taka það fram, að mér virðast nokkrar af þýðingum Guðmundar Frímanns góðar. Eina hef ég þegar nefnt og ég vil einnig nefna hið sterka, óhugnanlega kvæði Tom Kristensens, Aftakan, og sum af kvæðum Gripenbergs. Nokkur smáljóðanna eru líka lipurlega þýdd. Sem sagt, Guðmundur Frí- mann getur þýtt og það \rel, þótt vart eigi hann eftir að verða iafningi Magnúsar og Helga. Og einmirt vegna þess að hann hefur sýnt að hann gctur þýtt sé ég enga ástæðu til að fyrirgefa honum og láta hann komast upp mcð þá hroð- virkni og það undansláttarsama kæruleysi, scm nú emkennir of margar af þýðingum hans. Sigurður bórarinsson. Hló eitt sinn upphátt Cisli Astþórsson: Hlýjar hjartarœtur. Almenna bókafélagið, Reykjavík, 1958. Það er víst ekki talið bera vott um ntikla andlega reisn að hafa gaman af 5 aura brönd- urum. En ég get ekki að því gert að þegar ég les setningu eins og „betra er að vera lúinn en með ólúinn garð“, eða upphaf þáttar sem °) dimfingrar af dimma = þoka. 58 byrjar svo: Mér var ungum gefin Njála, þá stekkur mér bros. E.t.v. er það vegna þessa lastar að lestur bókar Gísla Ástþórssonar varð mér til talsverðrar ánægju. Ég kímdi oft og hló eitt sinn upphátt og er það á við væna vitamínpillu í rigningu í svartasta skammdegis- ins. Það er yfirleirt svo fátt skrifað hér í létt- um tón. Jónas Árnason er næstum sá eini, sem kann að ge>a það á listrænan hátt. Ekki nær hann Gísli honum enn, til þess skortir hann persónuleika sem rithöfundur og hann er á stundum óþarHega meinlaus. Honum verð- ur því lítið úr efni cins og t. d. konungsheim- sóknunum, sem hefði þó átt að vera tilvalið. Þá fáu daga, sem kóngar frændþjóða vorra hafa dvalizt í hvalfangarahúsinu við Tjarnar- götu, hafa borgararnir í okkar ágæta höfuð- stað sýnt, að þeir eru fyllilega samkeppnis- fær'r á sviði fordildar við þá, sem búa í kóng- legum höfuðborgum. Þættirnir Oskabörn þjóðarinnar og Dapur heimspekingur með sál virðast mér dálítið nöldurskenndir. Mest gaman hef ég af höf. þegar hann Iætur dæluna ganga í einskonar dellustíl eins og r. d. í lýsingunni á útilegum. Sú lýsing er í senn sönn og skemmtileg. Tveir af heztu þáttunum, Bissnes og Listin að byggja hafa áður komið á prent. Sú fyrrnefndi cr samansoðinn algjörlcga eftir kokkabók Damon Runyans og er svo sem ekki leiðum að líkjast. Sagan Líf og list er viðvaningsleg, en sögu- kornið Pilsdátinn og kvæið eitt af því bezta í bókinni. Eflaust má kalla það. sem Gísli Ástþóisson framreiðir, léttmeti, en einhvernveginn finnst mér, að eitthvað sé bogið við þá, sem ekki hafa ánægju af neinu í þessari bók. Sigurður Þórarinsson. Draumur eöa martröð Jón Dan: Sjávarföll. Almenna bóka- félagið, Reykjavík, 1958. Skrif manna hafa vafalaust ýmsan tilgang, en örðugt er skilnings, að sú hljóti ekki ávallt að vera ætlun höfundar, að lesendur hans skilji eða að minnsta kosti skynji, hvað fyrir honum vakir. Meðal annars hefur mér virzt það eitt einkenni góðs skáldskapar, að lesendur skynji innra með sjálfum sér við lestur hans eitthvert DAGSKRÁ

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.