Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Síða 21
BJÖRN FRIÐFINNSSON,
f.v. bæjarstjóri:
HITAVEITUR
OG
HESTVAGNAR
Hugleiðingar um orkunotkun
Upp á síðkastið liöfum við fylgzt með örum
breytingum, sem varða orkumál mannkyns. Olíu-
notkun jarðarbúa, sem á síðustu áratugum hefur
tvöfaldazt á hverjum 12 árum, hefur valdið auk-
inni samkeppni iðnaðarþjóðanna um aðgang að
olíulindunum við Persaflóa, N.-Afríku og víðar,
en ríkin, sem olíuna eiga, hafa aftur á móti séð
sér leik á borði og krafizt hækkaðs verðs og auk-
inna tekna af olíuvinnslunni.
Þessi breyting hefur orðið enn örari vegna þess,
að olíuvinnsla í Bandaríkjunum, sem eru stærsti
olíunotandi lieims, hefur staðnað, og reiknað er
með, að olíuinnflutningur þangað muni þrefald-
ast fram til ársins 1980 og fimmfaldast fram til
ársins 1985. Þá liafa þjóðir með miklar olíulindir,
eins og t. d. Venezuela, látið draga úr vinnslu
í því skyni, að auðlindirnar endist þeim lengur.
Vissulega hafa nýjar olíulindir fundizt á síð-
ustu árum bæði á hafsbotni og í heimskautalönd-
um, en þær duga þó iðnaðarþjóðunum skammt,
og vinnslukostnaður olíunnar verður augljóslega
hár.
Það er því fyrirsjáanlegt, að aukin eftirspurn
eftir eldsneyti af jarðolíuuppruna, samfara
minnkandi framboði og auknum kröfum olíu-
ríkjanna rnuni valda stórhækkuðu verði olíu á
næstu árum. Þannig telur framkvæmdastjóri
bandarísku orkustofnunarinnar1), aðjarðolíuverð
frá Miðausturlöndum, sem nú er sem svarar 200
ísl. krónum á eininguna (fatið eða bbl.), verði
sem svarar 330 kr. árið 1976 og 440 kr. árið 1980.
Aðrir áætla, að árið 1980 verði einingin komin í
sem svarar 620 krónur. Verð á öðru eldsneyti,
svo sem kolum og jarðgasi, mun tvímælalaust
fylgja á eftir, Jjótt hækkanirnar verði ekki eins
örar.
Slíkar breytingar hljóta að hafa í för með sér
mikla röskun á efnahagslífi og alþjóðastjórnmál-
um á þessum áratug, en út í Jrá sálma skal ekki
nánar farið hér.
Lífskjör okkar íslendinga eru í ríkum mæli
háð orkuverði. Híbýli okkar þarfnast upphitun-
ar allt árið, iðnaðurinn raforku, samgöngukostn-
aður er hár og fiskiflotinn olíuknúinn. Lífsvenj-
ur okkar hafa að undanförnu mótazt mjög af
hinu lága eldsneytisverði, og er bifreiðanotkun
landsmanna ljósasti vottur þess.
Ef verð á innfluttu eldsneyti tvö- til Jjrefaldast
á næstu 10 árum, er ljóst, að við stöndum and-
spænis miklum vanda, og að við verðum strax
að liefja aðgerðir til að mæta honum. í Jjví sam-
bandi kann að verða nauðsynlegt að taka for-
1) Business Week 29. júlí 1972, bls. 56.
SVEITARSTJÓRNARMÁL